Lokahóf handknattleiksdeildar

Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka verður haldið laugardaginn 19. maí á Ásvöllum. Húsið opnar klukkan 19:00 og borðhald hefst stundvíslega klukkan 20:00.

Aðgangur er ókeypis.

Aldurstakmark er 18 ára.

Fjölmennum og eigum góðar stundir saman.

Lokahóf handknattleiksdeildar

Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka verður haldið að Ásvöllum, föstudaginn 19. maí n.k.
Húsið opnar kl. 20:00 og hefst borðhald kl. 21:00. Takið með ykkur spil þar sem ræða formanns verður í lengra lagi.

Verð aðeins kr. 1.000 Allir velkomnir
Haukamenn fjölmennið og fagnið uppskeru vetrarins í góðra vina hópi

Lokahóf handknattleiksdeildar

Minnum á uppskeruhátíðir handknattleiksdeildar á miðvikudaginn á Ásvöllum.

Yngri flokkarnir eru kl. 16.00 til 18.00. Dagskrá er hefðbundin, grill, skemmtiatriði og verðlaunaafhendingar.
Um kvöldið er komið að þeim eldri og opnar húsið kl. 19.30 og þar verður líka hefðbundin dagskrá “a la Haukar”.

Mætum öll og gleðjumst saman eftir glæsilega uppskeru vetrarins.

Lokahóf handknattleiksdeildar

Lokahóf handknattleiksdeildarinnar verður haldið miðvikudaginn 8. maí næstkomandi. Stuðningsmenn og velunnarar eru hvattir til að mæta. Miðaverði er stillt í hóf og er aðeins 1.000 kr. og er innifalinn veislumatur og skemmtiatriði. Þar sem að skammur tími er til stefnu verða miðarnir seldir við innganginn. Húsið verður opnað klukkan 19:30 og borðhald hefst 20:30.