Aðalfundur
Framhaldsaðalfundur hjá deildinn var haldinn í gærkvöldi. Helstu breytingar voru þær að Eiður Arnarson, formaður til tveggja ára gaf ekki kost á sér í formannsstólinn en hann fór ekki langt og var kjörinn í stjórn. Við formennsku tók Þorgeir Haraldsson og þarf vart að kynna hann fyrir ykkur. Þorgeir var fyrst kjörinn í stjórn fyrir rétt rúmum 30 árum og hefur verið að meira og minna síðan. Var formaður deildarinnar í 13 ár samfleytt frá 1989 til 2002 og tók þá við formennsku í félaginu í tvö ár, en núna er hann kominn heim aftur. Þorgeir er öflugur leiðtogi og hefur sér til halds og trausts stóra og sterka stjórn með mikla reynslu, en stærstur hluti stjórnarmanna hefur starfað fyrir deildina mörg undanfarin ár og áratugi.
