Leikbæjarmót-Sigurvegarar í C-liðum
Leikbæjarmótið fór vel fram í alla staði. Um morguninn spiluðu A og B lið. A-liðið vann FH og Fjölni nokkuð sannfærandi en tapaði úrslitaleik við Grindavík og endaði í öðru sæti. B-liðinu gekk ekki eins vel og laut í gras í öllum sínum leikjum en samt gerðu þeir sitt besta og oft sáust skemmtileg tilþrif og glæsileg mörk. Ekki var veðrið gott og rigndi aðeins á okkur en engum varð meint af nema þjálfaranum sem fór veikur heim á hádegi. Eftir hádegi mættu C og D-lið undir öruggri stjórn Andra (hinum sigursæla aðstoðarþjálfara!) Hann leiddi C-liðið til sigurs. Þeir unnu alla leiki sína nokkuð örugglega og fengu glæsilegan bikar að launum. D-liðið varð, eins og B-liðið, að sætta sig við það að tapa öllum sínum leikjum þó svo að þeir hafi skorað falleg mörk. Þótt að C-liðið hafi unnið bikarinn er hann fyrir alla strákana í flokknum því þeir hafa allir lagt sig mjög mikið fram og sýnt miklar framfarir.
Á heildina litið heppnaðist allt mjög vel. Ég vil þakka hinni frábæru foreldrastjórn, mótstjóranum, Bjarna vallarstjóra, þeim sem unnu í sjoppunni, unglingaráði, Andra og öllum þeim sem komu að að þessu móti kærlega fyrir.
Óli
