Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara Björk spili sinn fyrsta leik fyrir Hauka gegn Keflavík í Lengjudeild kvenna þann 16. júlí nk. Sara kemur til Hauka frá Al-Qadsiah í Sádí-Arabíu þar sem hún hefur spilað síðustu tvö ár.

Með komu Söru styrkja Haukar enn frekar metnaðarfullt starf sitt, bæði innan sem utan vallar, þar sem Sara mun einnig koma að afreksþjálfun hjá knattspyrnudeild Hauka.

Sara var kjörin Íþróttamaður ársins 2018 og 2020 sem undirstrikar þá stöðu sem hún hefur skipað meðal fremstu íþróttamanna þjóðarinnar.

Hún vann Meistaradeild Evrópu með Olympique Lyonnais árið 2020 og 2022. Í fyrra skiptið skoraði Sara eitt marka Lyon og varð þar með fyrsti Íslendingurinn til að skora í úrslitaleik Meistaradeildar kvenna.

Þá vann Sara sænsku deildina fjórum sinnum, auk þess að verða sænskur bikarmeistari. Hún vann þýsku Bundesliguna með VFL Wolfsburg fjórum sinnum og varð fjórum sinnum bikarmeistari. Þá varð hún bikarmeistari með Juventus á Ítalíu.

Sara á að baki einstakan landsliðsferil og var fyrirliði liðsins í mörg ár. Hún lék 145 A-landsleiki fyrir Ísland og spilaði með landsliðinu á EM 2009, 2013, 2017 og 2022.

Eins og áður greinir þá mun Sara einnig koma að afreksþjálfun hjá félaginu. Reynsla hennar á hæsta stigi knattspyrnunnar verður dýrmæt fyrir unga og efnilega leikmenn Hauka og mun án efa styrkja enn frekar afreksstarf félagsins.

Sara Björk kveðst afar ánægð að vera kominn aftur heim á Ásvelli. ,,Eftir 15 ár í atvinnumennsku þá er ég komin heim og er mjög ánægð og stolt að hafa skrifað undir 2 ára samning við Hauka. Það verður sérstakt að fara aftur í Hauka treyjuna og spila á Ásvöllum! Ég hlakka til að vera hluti af liðinu og leggja mitt af mörkum til félagsins. Hlakka til að sjá alla á vellinum.”

Haukar bjóða Söru Björk hjartanlega velkomna heim á Ásvelli og hlakka til að sjá hana leiða lið félagsins á næstu árum, bæði í baráttunni á vellinum og í áframhaldandi uppbyggingu öflugs afreksstarfs félagsins.