Nýr leikmaður til Haukanna
Í kvöld gekk hinn bráðefnilegi hornamaður Þórir Ólafsson til liðs við Hauka. Þórir er uppalinn Selfyssingur og hefur leikið með þeim undanfarin ár. Þórir mun leika með Haukum næstu þrjú tímabil hið minnsta og bjóðum við Haukamenn Þóri velkominn og vonum við að hann njóti sín í Haukafjölskyldunni. Velkominn Þórir.Á myndinni eru Viggó, Þórir og Eiður varaformaður deildarinnar.
