Lokahóf HSÍ

Lokahóf HSÍ var haldið á Broadway í gærkvöldi. Þar var kynnt val leikmanna og þjálfara á þeim bestu á keppnistímabilinu. Ekki er hægt að segja annað en Haukar hafi hlotið glæsileg verðlaun.

Besti leikmaður Esso-deilar karla er Halldór Ingólfsson
Besti leikmaður Esso-deildar kvenna er Inga Fríða Tryggvadóttir
Besti þjálfari karla er Viggó Sigurðsson
Besti þjálfari kvenna er Gústaf Adolf Björnsson
Besti varnarmaðurinn er Rúnar Sigtryggsson

Einnig voru Harpa Melsted og Inga Fríða tilnefndar sem bestu varnarmenn, Bjarni Frostason sem besti markmaður, Halldór Ingólfsson sem besti sóknarmaður og Aron Kristjánsson sem besti leikmaður.

Við Haukar erum að sjálfsögðu verulega stolt af okkar fólki og óskum ykkur innilega til hamingju.

Glæsileg verðlaun hjá frábærum íþróttamönnum og sýnir að Haukar eru og verða alltaf bestir.