Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Nýir leikmenn til mfl.kvenna

    Mfl. kvenna hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi vetur. Þetta eru þær Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir frá FH, Björk Tómasdóttir, skytta úr Fram og Lukrecija Bokan (Lucia), markmaður frá Króatíu. Við bjóðum þær velkomnar í hópinn og án efa eiga þær eftir að styrkja liðið okkar, þ.e. “druslurnar okkar”, hina frábæru Deildar- og Íslandsmeistara 2002. Velkomnar…

  • Haukar til Kýpur

    Strákarnir fara til Kýpur í október í Evrópukeppni bikarhafa. Þeir fá liðið Youth Union Strovolos í heimsókn 5-6 október og spila ytra helgina eftir. Þetta verður að teljast góður dráttur fyrir Haukana bæði uppá ferðakostnað og eins með tilliti til möguleika á áframhaldandi þáttöku.

  • Haukar unnu 17.júní bikarinn

    Haukarstrákarnir unnu fimleikadrengina í 17.júní leiknum sem að venju fór fram í Íþróttahúsinu v/Strandgötu á þjóðhátíðardaginn. Vegna fjarveru meirihluta meistaraflokks Hauka var liðið okkar að stórum hluta skipað strákum úr 3. flokki. Það kom ekki að sök og unnu strákarnir okkar leikinn 27-24, þrátt fyrir að FH mætti með sitt sterkasta lið. Íþróttahúsið var þéttskipað…

  • Sumaræfingar 2002

    Ákveðið hefur verið að bjóða iðkendum handknattleiksdeilar Hauka upp á æfingar í sumar. Þetta er gert til þess að koma á móts við þarfir barna og unglinga sem vilja æfa handknattleik yfir sumartímann. Æfingarnar fara fram í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum og hefjast æfingar þriðjudaginn 4. júní næstkomandi. Æft verður allan júni mánuð, frí verður…

  • A-landslið karla

    Samkvæmt frétt á hemasíðu HSÍ hefur Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari valið eftirtalda leikmenn í A-landslið karla til þess að fara til Belgíu 23. – 27.maí, en liðið tekur þátt í Flanders Antwerp Handball Cup ásamt Svíþjóð, Júgóslavíu og Dönum. Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, Pallamano Conversano Bjarni Frostason, Haukar Birkir Ívar Guðmundsson, Torreviejo Hornamenn og línumenn: Jón Karl…

  • Nýr leikmaður !!!

    Fæddur er sonur hjá Aroni og Huldu, hann er 56 cm og 20 merkur. Við óskum þeim og Darra stóra bróður innilega til hamingju. Vertu velkomin í heiminn litla krútt og megi friður og farsæld fylgja þér um ókomin ár.

  • Landslið karla

    Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla valdi eftirfarandi hóp fyrir verkefnin sem framundan eru. Við Haukar eigum þar nokkra af okkar frábæru leikmönnum. Markverðir: Birkir Ívar Guðmundsson, Torrevijeo Bjarni Frostason, Haukum Guðmundur Hrafnkelsson, Conversano Hlynur Morthens, Gróttu/KR Hreiðar Guðmundsson, ÍR Hornamenn og línumenn: Bjarki Sigurðsson, Val Einar Örn Jónsson, Haukum Guðjón Valur Sigurðsson, Essen Gústaf Bjarnason, Minden…

  • Landslið kvenna

    Stefán Arnarson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik valdi eftirfarandi hóp fyrir alþjóðlegt mót á Kanaríeyjum í næstu viku. Við Haukar eigum þar glæsilega fulltrúa. Markverðir: Helga Torfadóttir, Víkingi Jenný Ásmundsdóttir, Haukum Aðrir leikmenn: Ágústa Björnsdóttir, Gróttu/KR Helga Birna Brynjólfsdóttir, Víkingi Kristín Guðmundsdóttir, Virum Hafdís Hinriksdóttir, FH Hafrún Kristjánsdóttir, Val Harpa Melsted, Haukum Dagný Skúladóttir, ÍBV Drífa…

  • Uppskeruhátið yngri flokka

    Uppskeruhátíð yngri flokka var haldin í dag. Þar voru veitt verðlaun fyrir nýliðin vetur. Einnig voru nýkrýndir Íslandsmeistarar í 3.fl. karla heiðraðir sérstaklega.          Smelltu hér til að skoða myndirnar. ungl.fl.kv. Besti leikmaður: Bryndís Jónsdóttir ungl.fl.kv. Mestu framfarir: Elísa Björk Þorsteinsdóttir 3.fl.ka Besti leikmaður: Ásgeir Örn Hallgrímsson 3.fl.ka. Mestu framfarir: Arnar Freyr Björnsson 4.fl.kv. Besti leikmaður:…

  • Handboltaleikur

    Loksins hefur einhver lagt í það að gera handknattleikstölvuleik. Þessi kemur frá danaveldi og er ekki ósvipaður og sjálfur Championship Manager. Menn, og konur, ættu að geta eytt einhverjum tíma í þetta í sumar og æft sig fyrir komandi vetur.http://snow.prohosting.com/skarp/