Strákarnir fara til Kýpur í október í Evrópukeppni bikarhafa. Þeir fá liðið Youth Union Strovolos í heimsókn 5-6 október og spila ytra helgina eftir. Þetta verður að teljast góður dráttur fyrir Haukana bæði uppá ferðakostnað og eins með tilliti til möguleika á áframhaldandi þáttöku.