Haukar unnu 17. júní bikarinn

Strákarnir okkar unnu enn eina dolluna er þeir sigruðu FH 38-33 í árlegum leik um 17. júní bikarinn á Strandgötunni í dag.
Það er alltaf gaman að fá bikar í safnið, sama hvort hann er stór eða lítill.

Haukar unnu 17.júní bikarinn

Haukarstrákarnir unnu fimleikadrengina í 17.júní leiknum sem að venju fór fram í Íþróttahúsinu v/Strandgötu á þjóðhátíðardaginn.
Vegna fjarveru meirihluta meistaraflokks Hauka var liðið okkar að stórum hluta skipað strákum úr 3. flokki. Það kom ekki að sök og unnu strákarnir okkar leikinn 27-24, þrátt fyrir að FH mætti með sitt sterkasta lið.
Íþróttahúsið var þéttskipað fólki og ágætis stemming á pöllunum og gaman að mæta aftur í Strandgötuna og rifja upp gamlar minningar.
Til hamingju Haukar með “Tobbusjoppubikarinn”.