Nýir leikmenn til mfl.kvenna

Mfl. kvenna hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi vetur. Þetta eru þær Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir frá FH, Björk Tómasdóttir, skytta úr Fram og Lukrecija Bokan (Lucia), markmaður frá Króatíu. Við bjóðum þær velkomnar í hópinn og án efa eiga þær eftir að styrkja liðið okkar, þ.e. “druslurnar okkar”, hina frábæru Deildar- og Íslandsmeistara 2002.
Velkomnar stelpur í Haukafjölskylduna.