GróttaKR í Evrópukeppni
Við Haukar óskum GróttuKR góðs gengis í Evrópukeppninni en þeir spila við úkraníska liðið Switlotechnik núna um helgina. Fyri leikurinn er í dag kl. 16.00 og sá síðari á morgun kl. 20.00.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Við Haukar óskum GróttuKR góðs gengis í Evrópukeppninni en þeir spila við úkraníska liðið Switlotechnik núna um helgina. Fyri leikurinn er í dag kl. 16.00 og sá síðari á morgun kl. 20.00.
Það var frekar dapur leikurinn hjá stelpunum á Nesinu í kvöld er þær töpuðu 26-25 fyrir GróttuKR. Leikurinn var jafn til að byrja með, liðin skiptust á að skora, þar til Haukastelpur sigu aðeins framúr og var staðan 11-15 í hálfleik. GróttaKr kom grimmari til seinni hálfleiks, en stelpurnar okkar voru þó alltaf skrefinu á…
Athugið breyttan leiktíma hjá stelpunum útá nesi. Leikurinn átti að vera á laugardaginn en honum hefur verið flýtt fram á föstudag og hefst dýrðin kl. 20:00. Allir að mæta!
Harpa Melsted, fyrirliði er í prófíl á sportid.is Smellið hér
Kíkið á fréttir af 7. fl. karla. Farið í „Yngri flokkar“ og veljið 7.fl. karla.
Stelpurnar áttu dapran dag svipað og strákarnir og töpuðu 20-25 fyrir Stjörnunni á Ásvöllum í dag. Þær byrjuðu þó leikinn betur og voru yfir fyrri hluta hálfleiks en Stjarnan náði að jafna 9-9 og komst yfir 11-12 í hálfleik. Gestirnir byrjuðu seinni hálfleik betur en ekkert gekk í sókninni hjá okkar stelpum og komst Stjarnan…
Strákarnir töpuðu fyrir slaghörðum Valsmönnum í kvöld. Herbragð þeirra gekk upp og höfðu strákarnir ekkert að segja við látunum og virtust þeir ekki vita hvaðan á sig stóð veðrið. Við vorum einum og tveimur fleiri margsinnis og nýttist það vægast sagt mjög illa. Sömu sögu er að segja af vörninni.Þó virtist sem lifnaði við mönnum…
Strákarnir unnu Selfyssinga nokkuð auðveldlega á Ásvöllum í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 17-10 og lokatölur 32-23. Okkar menn voru ekki að spila vel, gerðu heilmikið af mistökum en ágætis tilþrif sáust þó á milli. Mótstaðan var frekar lítil og má reikna með að veturinn verði Selfyssingum erfiður. Gaman var að sjá ungu strákana okkar…
Minnum á leikina um helgina á Ásvöllum Í kvöld Haukar-Selfoss klukkan 20.00 mfl.karla Sunnudag kl. 18.00 Haukar-Stjarnarn mfl.kvenna Sunnudag kl. 20.00 Haukar-Valur mfl.karla
SS bikar 16 liða úrslit kvenna Víkingur – FH Fram 2 – Fylkir/ÍR FH 2 – Fram KA/Þór – Grótta/KR Þau lið sem sitja hjá: Haukar, Íslandsmeistarar ÍBV, Bikarmeistarar Stjarnan Valur SS bikar 32 liða úrslit karla KSF/Hörður – Stjarnan Hunangstunglið – Grótta/KR ÍR – ÍBV 2 Leiknir – Selfoss Fylkir – Ármann/Þróttur Valur 2,…