Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Dómstóll HSÍ

    Dómstóll HSÍ kvað nú rétt áðan upp dóm í máli Robertas, skyttunnar okkar öflugu. Dómsorðið er eftirfarandi: “HSÍ skal heimila félagaskipti Robertas Pauzuolis úr Ungmennafélagi Selfoss yfir í Hauka.” Það er vonandi að málinu sé hér með lokið og Robertas geti stundað sína íþrótt með félögum sínum í Haukum.

  • A-landslið kvenna

    Samkvæmt frétt á heimasíðu HSÍ hafa Stefán Arnarson og Örn Ólafsson, þjálfarar A-landsliðs kvenna, valið 16 leikmenn til þess að taka þátt í æfingaleikjum í Slóveníu 2. – 6. nóvember n.k. Markmenn: Berglind Hansdóttir, Valur Helga Torfadóttir, Víkingur Hornamenn: Anna Blöndal, Stjarnan Dagný Skúladóttir, Issy Les- Moulineaux Hanna Stefánsdóttir, Haukar Ragna Karen Sigurðardóttir, Grótta/ KR…

  • Haukar-HK mfl.ka.

    Strákarnir fóru illa að ráðu sínu er þeir tóku á móti HK á Ásvöllum í kvöld í Essó deildinni. Leikurinn endaði með jafntefli 24-24 eftir að okkar menn höfðu verið með leikinni í höndum sér allt fram á síðustu mínútur. Þeir byrjuðu leikinn vel, skoruðu fyrsta markið og náðu góðu forskoti, komust í 10-4, 14-7…

  • Landsliðshópur World Cup 2002

    Samkvæmt frétt á heimasíðu HSí hefur Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari valið 17 manna hóp til að spila á World Cup í Svíþjóð dagana 29.október – 03.nóvember 2002. Ísland leikur fyrsta leikinn gegn Rússlandi þriðjudaginn 29.10.02 kl 20.30. Annar leikur er gegn Þýskalandi 30.10.02 kl 20.30 og þriðji leikurinn í riðlinum er gegn Júgóslavíu Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson,…

  • Haukar-FH mfk.kv.

    Stelpurnar okkar unnu frábæran sigur 26-24 á nágrönnum okkar fimleikafélaginu. Þær byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina allan leikinn, reyndar var staðan 1-1 og 2-2 í byrjun en Haukastelpurnar voru síðan alltaf með frumkvæðið. Staðan í hálfleik var 15-10. Gestirnir náðu að minnka muninn í eitt mark undir lokin, en okkar stelpur héldu haus þrátt fyrir…

  • Leikir kvöldsins

    Stelpurnar gerðu jafntefli 19-19 við Víking í Víkinni í kvöld. Þær lentu 0-5 undir í byrjun en tóku sig á og staðan í hálfleik var 10-8. Strákarnir fóru í Garðabæinn og heimsóttu Stjörnuna og unnu góðan sigur 24-32. Þeir höfðu yfirhöndina allan leikinn og í raun aldrei spurning hvoru megin sigurinn lent, þó Stjörnudrengir hafi…

  • UMFA-Haukar

    Strákarnir okkar gerðu ekki góða ferð í Mosó. Kjúklingarnir höfðu betur og slógu okkar menn út úr bikarnum 30-22. Í byrjun leit þetta út fyrir spennandi leik, en þegar leið á leikinn datt allur kraftur úr Haukastrákum og eftir það var fátt um fína drætti hjá flestum nema Mosfellingum ……..

  • SS-Bikarinn

    Minnum á leikinn í SS-Bikarnum hjá strákunum á morgun kl. 20.00 uppí Mosó. Þeir halda vonandi áfram með brostæknina og áhorfendur mæta að sjálfsögðu líka brosandi. Sjáum hvað við komumst langt á því.

  • Conversano

    Þess má geta að landsliðsmarkvörður okkar Íslendinga, Guðmundur Hrafnkelsson, stendur á milli stanganna hjá næstu mótherjum okkar í Evrópukeppninni. Fyrir þá sem eru sleipir í ítölskunni er heimasíða þeirra papillonconversano.com. Nú fyrir þá sem ekki eru sleipir í ítölskunni má alltaf benda á babelfish.altavista.com þar sem hægt er að þýða textann. 🙂 Skv. heimasíðu þeirra…