Leikir kvöldsins

Stelpurnar gerðu jafntefli 19-19 við Víking í Víkinni í kvöld. Þær lentu 0-5 undir í byrjun en tóku sig á og staðan í hálfleik var 10-8.

Strákarnir fóru í Garðabæinn og heimsóttu Stjörnuna og unnu góðan sigur 24-32. Þeir höfðu yfirhöndina allan leikinn og í raun aldrei spurning hvoru megin sigurinn lent, þó Stjörnudrengir hafi náð að minnka í 3 mörk í seinni hluta leiks. Strákarnir okkar tóku þá við sér og kláruðu leikinn með stæl.