Haukar-FH mfk.kv.

Stelpurnar okkar unnu frábæran sigur 26-24 á nágrönnum okkar fimleikafélaginu. Þær byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina allan leikinn, reyndar var staðan 1-1 og 2-2 í byrjun en Haukastelpurnar voru síðan alltaf með frumkvæðið. Staðan í hálfleik var 15-10. Gestirnir náðu að minnka muninn í eitt mark undir lokin, en okkar stelpur héldu haus þrátt fyrir að vera tveimur færri og lönduðu góðum og öruggum sigri 26-24.