Conversano

Nú er ljóst að mótherjar strákanna í EHF keppninni verða ítalska liðið Pallamano Conversano. Fyrri leikurinn verður úti helgina 30.sept./1.okt. og seinni leikurinn heima 7/8 okt.

Conversano

Þess má geta að landsliðsmarkvörður okkar Íslendinga, Guðmundur Hrafnkelsson, stendur á milli stanganna hjá næstu mótherjum okkar í Evrópukeppninni.
Fyrir þá sem eru sleipir í ítölskunni er heimasíða þeirra

papillonconversano.com. Nú fyrir þá sem ekki eru sleipir í ítölskunni má alltaf benda á babelfish.altavista.com þar sem hægt er að þýða textann. 🙂
Skv. heimasíðu þeirra ítölsku mætti ætla að upplýsingaöflun þeirra taki stuttan tíma…..