Drátturinn
Dregið var í þriðju umferð Evrópukeppninnar í morgun. Við fengum ítalska liðið A.S. Papillon Conversano. Fyrri leikurinn verður úti 9. eða 10. nóv. og seinni leikurinn, heimaleikur okkar, verður 16. eða 17. nóv.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Dregið var í þriðju umferð Evrópukeppninnar í morgun. Við fengum ítalska liðið A.S. Papillon Conversano. Fyrri leikurinn verður úti 9. eða 10. nóv. og seinni leikurinn, heimaleikur okkar, verður 16. eða 17. nóv.
Eins og allir vita kjöldrógum við lið Strovolos frá Kýpur síðastliðna helgi. Á morgun verður svo dregið í næstu umferð. Um ellefu leitið ætti þetta að liggja fyrir. Liðin sem eru í pottinum eru eftirfarandi: GOGDanmörkCiudad RealSpánnAdemar LeonSpánnChamberyFrakklandLemgoÞýskalandPick SzegedUngverjalandConversanoÍtalíaPrilepMakedóníaDrammenNoregurWarszawiankaPóllandBenficaPortúgalConstantaRúmeníaEnergiaRússlandLaskoSlóvakíaRedbergslidSvíþjóðCetinjeJúgóslavía
Það var boðið upp á sannkallaða flugeldasýningu á Ásvöllum í kvöld. Strákarnir gjörsigruðu gestina frá Kýpur 43-16 í seinni leik liðanna í Evrópukeppni bikarhafa. Strákarnir okkar byrjuðu af krafti og ætluðu greinilega að gefa sig alla í leikinn, og höfðu þeir árangur erfiðis síns og unnu glæsilegan sigur eins og fyrr segir. Mótstaðan var kannski…
Stelpurnar okkar áttu ekki í vandræðum með gestina úr Fylki/ÍR á Ásvöllum í dag og unnu góðan sigur 38-16. Þær tóku forystuna strax í upphafi og höfðu leikinn algjörlega í höndum sér allt til loka. Staðan í hálfleik var 15-6 og juku þær muninn í seinni hálfleik og sigruðu með 22 mörkum. Markahæst var Hanna…
Leikurinn hjá stelpunum er kl. 15.30 í dag á Ásvöllum (ekki kl. 16.30 eins og sumstaðar er auglýst). Tilvalið að hafa langan dag með fjölskyldunni á Ásvöllum, stelpurnar kl. 15.30 og síðan strákarnir kl. 18.00 í Evrópukeppninni. Áfram Haukar
Haukar sigruðu gestina frá Kýpur 31-20 á Ásvöllum í kveld. Leikurinn byrjaði nokkuð jafnt en Haukarnir voru fljótir að ná yfirtökum og komust gestirnir aldrei yfir. Strákanir okkar slökuðu þó of mikið á í seinni hluta fyrri hálfleiks og náðu gestirnir að jafna en Haukarnir löguðu þó stöðuna aðeins fyrir hálfleik í 16-13. Strákarnir komu…
Nú fer að styttast í leikina í Evrópukeppninni við Youth Union Strovolos frá Kýpur. Sá fyrri verður á föstudaginn kl. 20.00 og sá síðari á laugardaginn kl. 18.00. Báðir leikirnir fara fram á Ásvöllum. Ekki vitum við mikið um styrkleika þeirra Kýpurbúa en eins og allir vita þá er enginn leikur unninn fyrirfram og verða…
Stákarnir okkar gerðu góða ferð í höfuðborgina, er þeir unnu Víking 24-33 í Essó deildinni í kvöld. Heimamenn skorðu fyrsta markið úr víti og var það eina skiptið sem þeir voru yfir í leiknum. Staðan í hálfleik var 10-18 fyrir okkur. Leikurinn var frekar auðveldur fyrir okkar menn og sýndu þeir oft góðar fléttur í…
Minnum á að leikurinn hjá strákunum við Víking er í kvöld í Víkinni kl. 20.00 (ekki annað kvöld).
Dregið var í 16 liða úrslitum SS-bikarsins í dag. Haukar heimsækja Aftureldingu í Mosfellsbæinn. Drátturinn var annars þessi: Breiðablik – GróttaKR 2 Selfoss – GróttaKR UMFA – HAUKAR Fram – Þór Ak. ÍR 2 – Fylkir KA – ÍR Valur – Stjarnan Valur 2 – HK Leikirnir eiga að fara fram 16. október