Evrópukeppnin: Dregið á morgun!
Eins og allir vita kjöldrógum við lið Strovolos frá Kýpur síðastliðna helgi. Á morgun verður svo dregið í næstu umferð. Um ellefu leitið ætti þetta að liggja fyrir. Liðin sem eru í pottinum eru eftirfarandi:
| GOG | Danmörk |
| Ciudad Real | Spánn |
| Ademar Leon | Spánn |
| Chambery | Frakkland |
| Lemgo | Þýskaland |
| Pick Szeged | Ungverjaland |
| Conversano | Ítalía |
| Prilep | Makedónía |
| Drammen | Noregur |
| Warszawianka | Pólland |
| Benfica | Portúgal |
| Constanta | Rúmenía |
| Energia | Rússland |
| Lasko | Slóvakía |
| Redbergslid | Svíþjóð |
| Cetinje | Júgóslavía |
