Haukar-Fylkir/ÍR mfl.kv
Stelpurnar okkar áttu ekki í vandræðum með gestina úr Fylki/ÍR á Ásvöllum í dag og unnu góðan sigur 38-16. Þær tóku forystuna strax í upphafi og höfðu leikinn algjörlega í höndum sér allt til loka. Staðan í hálfleik var 15-6 og juku þær muninn í seinni hálfleik og sigruðu með 22 mörkum. Markahæst var Hanna með 9 mörk og mörg hver eftir mögnuð hraðaupphlaup.
Frábær sigur stelpur. Áfram Haukar.
