Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Tækniörðuleikar

    Vegna flutnings á vefnum hjá okkur á nýja vél eru óhjákvæmilegar smávægilegar truflanir það sem eftir lifir dags og jafnvel eitthvað fram á annað kvöld. Vonandi verður mér fyrirgefið. 🙂 En þegar allt kemst í samt lag aftur verður kominn upp nýr vefur!!!

  • Valur-Haukar mfl.kv.

    Stelpurnar unnu góðan sigur á Val á Hlíðarenda í kvöld. Leiknum lauk með 7 marka sigri 21-28. „Heimasíðan“ var ekki á staðnum og veit því lítið meira um leikinn …………. Til hamingju með sigurinn – tvö stig til viðbótar í safnið.

  • KA – Haukar mfl.ka.

    Strákarnir gerðu sömuleiðis góða ferð norður og sýndu þessum norðanstrákum hvernig á að spila handbolta, og tuða minna. Það er skemmst frá því að segja að fyrstu 20 mín leiksins hafi verið algjör einstefna. Vörnin hjá Haukastrákunum og Birkir Ívar á bakvið mynduðu ótrúlega góða heild og var allt annað að sjá til strákanna í…

  • KA/Þór -Haukar mfl.kv.

    Stelpurnar gerðu góða ferð norður í gærkvöldi og unnu KA/Þór 24-29. Þær lögðu grunn að sigri með góðum leik í fyrri hálfleik og voru yfir 9 mörk, en slökuðu á í þeim síðari. Norðanstúlkur mættu baráttuglaðar til leiks í seinni hálfleik og náðu að minnka muninn í þrjú mörk. Haukarstelpur héldu þó haus og náðu…

  • Haukar – Grótta/KR mfl.ka.

    Haukar voru langt frá sínu besta og hungraðir Seltirningar sóttu tvö stig á Ásvellina. Staðan í hálfleik var 8-13 og endaði leikurinn 22-26. Strákarnir okkar áttu sem fyrr segir dapran leik og gekk hvorki fram né aftur. Eitthvað virtust leikmenn og þjálfarar misskilja hvar baráttan átti að eiga sér stað og voru mestu lætin við…

  • Stórsigrar í 1. umferð

    Þá er lokið fyrstu umferð í Essó deildinni, bæði karla og kvenna. Ekki er hægt að segja annað en bæði liðin okkar hafi byrjað mótið með stæl. Stelpurnar unnu stórsigur á Fram í Framheimilinu á föstudagskvöldið 18-33. Þær höfðu mikla yfirburði í leiknum og fór fyrirliðinn Harpa Melsted fyrir sínu liði og skorði 11 mörk…

  • Í upphafi tímabils

    Í upphafi tímabils rifjum við upp gamlan texta sem enn er í fullu gildi. Aðgát skal höfð ! Að kunna að sigra og tapa Oft er talað um uppeldisgildi íþótta og þess að stunda íþróttir. Uppeldisgildi íþrótta er mikið og þess vegna leggur þátttakan okkur miklar skyldur á herðar. Bæði á herðar þeirra sem taka…

  • Boltinn af stað ……

    Jæja, þá er loksins komið að því – handboltinn er að fara af stað eftir sumarfrí. Á morgun, miðvikudag er fyrsti leikurinn þegar stelpurnar okkar taka á móti ÍBV í Meistarakeppni HSÍ um titilinn “Meistari meistaranna”. Leikurinn hefst kl. 19.30 á Ásvöllum og hvetjum við alla að mæta á þennan upphafsleik vetrarins. Fyrsti leikur í…

  • Haukagolf 2002

    Golfmót Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldið föstudaginn 30. ágúst nk. á hinum glæsilega golfvelli Keilis á Hvaleyrinni. Ræst verður út milli klukkan 11.00 og 15.00, og eru keppendur beðnir um að mæta tímanlega. Hægt er að bóka rástíma á netinu á www.golf.is eða í síma 565-3360. Keppnisgjald er kr. 2.000,00. Aldurstakmark er 16 ára og eldri….

  • Haukagolf

    Ágætu félagar, hið árlega Haukamót í golfi verður haldið á golfvellinum á Hvaleyri föstudaginn 30. ágúst nk. Nánar auglýst síðar.