Í upphafi tímabils
Í upphafi tímabils rifjum við upp gamlan texta sem enn er í fullu gildi.
Aðgát skal höfð ! Að kunna að sigra og tapa
Oft er talað um uppeldisgildi íþótta og þess að stunda íþróttir. Uppeldisgildi íþrótta er mikið og þess vegna leggur þátttakan okkur miklar skyldur á herðar. Bæði á herðar þeirra sem taka þátt í leiknum og þeirra sem stjórna og þá einnig og ekki síst á stuðningsmennina sem standa upp í pöllum. Allir geta gert mistök, bæði leikmenn, þjálfarar og dómarar það fylgir leiknum.
Í íþróttum er tekist á, þar er alltaf leikið til sigurs. Ekkert er jafnsætt og góður sigur en menn verða einnig að kunna sér hóf á sigurstundum. En gildi íþrótta felst ekki síst í því að kunna að tapa kunna að taka ósigri. Lið sem kann að tapa, kann að taka mótlæti, er oftar en ekki stærst á slíkum stundum.
Haukar hafa átt að skipa einhverjum öflugasta stuðningsmannahópi landsins. Við hvetjum alla stuðningsmenn Hauka til að hafa í heiðri þann fjölskylduanda sem hefur ætíð ríkt í okkar félagi. Við mætum með bros á vör í alla leiki, sama hvernig fer. Við höfum í heiðri íþróttaandann og virðum andstæðinga okkar. Gætum þess hvað við segjum. Oft láta menn sé um munn fara ummæli sem betur væru ósögð. Látum það ekki henda okkur. Verum jákvæð og skemmtum okkur á þeim leikjum sem framundan eru. Það gerum við best með jákvæðri hvatningu til leikmanna, þjálfara og dómara. Jákvætt fólk er skemmtilegt fólk. Munum að aðgát skal höfð – þannig heiðrum við best félagið okkar, Hauka.
