Haukar-Stjarnan mfl.kv.

Stelpurnar áttu dapran dag svipað og strákarnir og töpuðu 20-25 fyrir Stjörnunni á Ásvöllum í dag. Þær byrjuðu þó leikinn betur og voru yfir fyrri hluta hálfleiks en Stjarnan náði að jafna 9-9 og komst yfir 11-12 í hálfleik. Gestirnir byrjuðu seinni hálfleik betur en ekkert gekk í sókninni hjá okkar stelpum og komst Stjarnan 6 mörk yfir en Haukar minnkuðu í tvö mörk 19-21 en þá fór allt í baklás aftur og Stjarnan sigraði eins og fyrr segir 20-25.

Haukar-Stjarnan mfl.kv.

Stelpurnar okkar áttu dapran dag á Ásvöllum í dag. Þær töpuðu fyrir Stjörnustúlkum 20-21. Staðan í hálfleik var 11-10. Inga Friða var markahæst með 8 mörk, Thelma með 6, Harpa og Nína með 3 hvor.