Fréttatilkynning

Haukar

Ólafur Jóhannesson  ráðinn þjálfari meistaraflokks karla og Jón Stefán Jónsson þjálfari meistarflokks kvenna hjá Haukum

Í dag skrifa Ólafur Jóhannesson og Haukar undir 3ja ára samning þar sem Ólafur tekur við þjálfun meistaraflokks karla. Ólafur er vel þekktur enda þjálfað víða, nú síðast karlalandslið Íslands.

Með Ólafi kemur mikill reynslubolti til liðsins en Sigurbjörn Örn Hreiðarsson mun verða spilandi aðstoðarþjálfari. Sigurbjörn er knattspyrnuheiminum vel kunnur enda leikið með Val í áravís við góðan orðstír.

„Haukar hafa lagt gríðarlegan metnað í uppbyggingu yngri flokka félagsins sem er nú að skila sér í yngri landsliðum Íslands og frábærum árangri yngir flokka félagsins. Þeir hafa á að skipa einu besta þjálfarateymi sem ég þekki í yngri flokkum og framtíðin er björt. Það er því spennandi að taka við þessu verkefni. Fyrir er sterkir reynslumiklir leikmenn sem margir hafa fengið nasaþefin af úrvalsdeildinni og hungrar að komast þangað aftur. Forveri minn, Magnús Gylfason, hleypti mörgum ungum leikmönnum inní liðið í sumar og þá sást að mikill og sterkur efniviður er til staðar. Þessir strákar verða því vel undirbúnir þegar nýtt keppnistímabil hefst. Við tökum stefnuna á Pepsídeildina og við Sigurbjörn munum vinna markvisst að því og síðan að tryggja Haukum framtíðarbúsetu á meðal þeirra bestu“ segir Ólafur.

Samtímis mun Jón Stefán Jónsson skrifa undir 2ja ára samning þar sem hann tekur við þjálfun meistaraflokks kvenna. Jón Stefán hefur unnið frábært starf hjá yngri flokkum Þórs á undanförnum árum og var nú síðast yfirþjálfari yngri flokkanna.

„Mikið og metnaðarfullt starf er í gangi í yngri flokkum Hauka og hefur orðið gríðarleg fjölgun af stúlkum að æfa hjá félaginu. Markmiðið er að byggja upp á næstu misserum og að sjálfsögðu er markmiðið að verða meðal hinna bestu. Ég er mjög bjartsýnn og tel framtíð Hauka í kvennaboltanum bjarta“ segir Jón Stefán.

Haukar vilja þakka Magnúsi Gylfasyni og Heimi Porca fyrir frábær störf. Það er metnaðarfullt starf í knattspyrnunni á Ásvöllum og uppbygging undanfarinna ára miðar að því að félagið tryggi sér framtíðarveru í úrvalsdeildum. Þetta er þolinmótt verkefni og með ráðningu Ólafs, Sigurbjörns og Jón Stefáns eru Haukamenn sannfærðir um að félagið hafa færst einu skrefi nær þessu markmiði.

Jón Björn Skúlason, formaður knattspyrnudeildar Hauka

 

 

Fréttatilkynning

Handknattleiksdeild Hauka hefur samið við stórskyttuna Gunnar Berg Viktorsson og markmanninn Gísla R. Guðmundsson um að leika með liði meistaraflokks karla næstu árin.

Gunnar Berg í HaukaGunnar Berg er mikill reynslubolti sem undanfarin 6 ár hefur leikið sem atvinnumaður erlendis, með PSG í Frakklandi, Wetzlar og Kronau-Östringen í Þýskalandi og nú með Holstebro í Danmörku. Gunnar á að baki um 80 landsleiki fyrir Íslands hönd og reynsla Gunnars kemur til með að styrkja lið okkar Haukamanna á komandi leiktíðum.

Gunnar Berg er uppalinn í Vestmannaeyjum og lék þar með ÍBV og síðar með Fram í 4 ár áður en hann fór út í atvinnumennsku.

Gísli R í HaukaGísli er fæddur og uppalinn á Selfossi og hefur leikið með Selfyssingum, ÍBV, Gróttu og ÍR í efstu deild. Nú leikur hann í Danmörku með liði Ajax Heroes. Gísli er íþróttafræðingur frá Kennaraháskólanum á Laugarvatni.

Auk þess að spila með meistaraflokki Hauka mun Gísli sjá um markmannsþjálfun fyrir handknattleiksdeild Hauka, en hann hefur undanfarin ár aukið sérþekkingu sína í þjálfun markmanna og er í samvinnu við danska markmannsþjálfara.

Koma Gísla til Hauka styrkir enn frekar það faglega starf sem fram fer í handknattleiksþjálfun hjá Haukum.

Stjórn handknattleiksdeildar Hauka.

Fréttatilkynning

Handknattleiksdeild Hauka hefur endurnýjað samninga við þjálfara meistaraflokka karla og kvenna. Gerður hefur verið nýr þriggja ára samningur við Viggó Sigurðsson og eins árs samningur við Gústaf Adolf Björnsson.Árangur meistaraflokks karla undir stjórn Viggós hefur verið frábær síðustu tvö árin eins og allir sem fylgjast með handbolta vita. Flestir tiltlar sem hafa verið í boði síðustu tvö árin hafa unnist og árangur í Evrópukeppni hefur vakið verðskuldaða athygli.
Gústaf Adolf Björnsson tók við meistaraflokki kvenna í nóvember síðastliðnum og hefur liðið náð mjög góðum árangri undir hans stjórn.

Fréttatilkynning

FRÉTTATILKYNNING FRÁ HANDKNATTLEIKSDEILD HAUKA

Af persónulegum ástæðum hefur Ragnar Hermannsson þjálfari mfl.kv. Hauka óskað eftir að láta af störfum. Ragnar hefur þjálfað Íslandsmeistara Hauka undanfarið 1 og ½ ár, náð frábærum árangri og í alla staði sýnt af sér fagmennsku og dugnað. Handknattleiksdeild Hauka þakkar honum frábært samstarf og væntir þess að njóta starfskrafta hans á ný þegar aðstæður hafa breyst.

Þá hefur Gústaf Adolf Björnsson tekið að sér það verk að fylla skarð Ragnars, með svo stuttum aðdraganda sem raun ber vitni. Haukar bjóða hann velkominn til starfa, þar sem hann tekur við góðu búi og spennandi verkefni vetrarins.

Stjórn handknattleiksdeildar Hauka
Þorgeir Haraldsson, formaður