Lukkumiði nr. 9

Eins og Haukamenn vita var efnt til Lukkudráttar vegna Barcelonaferðarinnar. Haukar í horni og aðrir velunnarar deildarinnar sem þekkja til þess hvernig fjármagna þarf Evrópukeppni studdu okkur drengilega með kaupum á þessum lukkumiðum. Í gærkvöldi var eitt nafn dregið úr pottinum. Hin landskunna leynilögga Gissur Guðmundsson sá um dráttinn og ef einhverjir eru óánægðir með hann er þeim bent á Leynilögreglufélag Hafnarfjarðar.
Lukkudráttinn fékk fyrrverandi fyrirliði meistaraflokks karla, Pétur Vilberg Guðnason og gaf hann vinninginn til deildarinnar eins og honum er von og vísa. Stjórn handknattleiksdeildar vill þakka honum kærlega fyrir, svo og öðrum stuðningsmönnum fyrir góðar undirtektir.