Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Hópferð á leik 4 í Vestmannaeyjum

    HÓPFERÐ Á LEIK #4? Það verður boðið uppá hópferð frá Ásvöllum til Eyja á miðvikudaginn. Mæting á Ásvelli ⏰13.00 brottför 13.15. Herjólfur fer 15.45 og tilbaka 22.00. Frítt inná leikinn fyrir 14 ára og yngri 1500kr fyrir aðra, miðar tryggðir fyrir þá sem fara í ferðina. Miðaverð í rútuna er 1500kr, fólk greiðir sjálft í…

  • Undanúrslitin halda áfram

    Það hefur verið hart barist í undanúrslitarimmu Hauka og ÍBV en liðin hafa unnið sitt hvorn leikinn hingað til og á sunnudaginn mætast liðin í 3ja sinn. Leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni kl. 16:00 og má búast við hörkuleik eins og undanfarna leiki þar sem að hart verður barist. Haukafólk er hvatt til þess að…

  • Undanúrslitin fara af stað

    Meistaraflokkur karla í handbolta hefur leik í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar karla á morgun, þriðjudag, kl. 18:00 þegar að ÍBV kemur í heimsókn í Schenkerhöllina. ÍBV vann FH í 8-liða úrslitum nokkuð sannfærandi 2-0 í leikjum á meðan Haukastrákarnir unnu Stjörnuna 2-1 í leikjum. Liðin hafa leikið tvisvar sinnum gegn hvoru öðru í vetur en fyrir áramót…

  • Staðfestir leiktímar fyrir undanúrslitin

    Strákarnir í meistaraflokki karla í handbolta tryggðu sér sæti í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn þegar að þeir sigruðu Stjörnuna örugglega í oddaleik í Schenkerhöllinni. Mótherjar Hauka í undanúrslitum verður ÍBV en þeir unnu FH í 8-liða úrslitum nokkuð sannfærandi 2-0 í leikjum. Þetta verður í 4 skiptið á síðustu 6 árum sem að liðin mætast í…

  • Oddaleikur í Schenkerhöllinni

    Það verður allt eða ekkert hjá strákunum í Meistaraflokki í handbolta á miðvikudaginn þegar að Stjarnan mætir í Schenkerhöllina kl. 19:30. Bæði lið eru búin að vinna 1 leik þannig að um úrslitaleik er að ræða þar sem að sigurvegarinn fer í undanúrslit en tapliðið í sumarfrí. Við þurfum því að fylla Schenkerhöllina til að…

  • Úrslitakeppnin heldur áfram

    Úrslitakeppni Olísdeildar karla í handbolta heldur áfram í dag þegar að meistarflokkur karla heldur í Garðabæinn og leikur þar við Stjörnunna. Leikurinn hefst kl. 15:00 í Mýrinni en þetta er annar leikur liðanna í 8-liða úrslitum. Liðin mættust líka á laugardag en þá höfðu Haukar betur 28 – 19 eftir að hafa verið 10 –…

  • Úrslitakeppni karla fer af stað

    Það er loksins komið að úrslitakeppni karla en í 8-liða úrslitum mæta strákarnir okkar Stjörnunni. Leikið verður laugardaginn 20. apríl í Schenkerhöllinni kl. 14:00. Liðin mættust tvisvar sinnum í vetur og unnu Haukar báða leikina en hart var barist í báðum leikjum. Það má búast við því sama á laugardaginn en úrslitakeppnin er nýtt mót…

  • Haukar Íslandsmeistarar í Utandeild karla

    Utandeildarlið Hauka í handbolta karla varð um helgina Íslandsmeistari Utandeildarliða eftir dramatískan sigur á liði Kórdrengja 28 – 27. Liðið varð í 4. sæti deildarinnar og var því síðasta liðið inn í úrslitin en í undanúrslitum slógu strákarnir út deildarmeistara Vals eftir hörkuleik 28 – 26. Í úrslitaleiknum mættu þeir svo liði Kórdrengja sem lenti…

  • Stelpurnar úr leik

    Meistaraflokkur kvenna í handbolta lauk leik í gær í Íslandsmótinu þegar að þær töpuðu 25 – 22 fyrir Val í þriðja leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Valur vann alla 3 leikina þrátt fyrir hetjulega baráttu stelpnanna en í öllum leikjunum náðu þær að halda Valsliðinu í 25 mörkum eða minna. Það var því sóknarleikurinn…