Undanúrslitin halda áfram

Það hefur verið hart barist í undanúrslitarimmu Hauka og ÍBV en liðin hafa unnið sitt hvorn leikinn hingað til og á sunnudaginn mætast liðin í 3ja sinn.

Leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni kl. 16:00 og má búast við hörkuleik eins og undanfarna leiki þar sem að hart verður barist.

Haukafólk er hvatt til þess að fjölmenna tímanlega í rauðu og láta í sér heyra í stúkunni því að allur stuðningur skiptir máli í svona leikjum. Áfram Haukar!