Rafíþróttadeild?
Upp hefur komið sú hugmynd að stofna rafíþróttadeild innan Knattspyrnufélags Hauka. Okkur langar til að kanna áhugan á slíku meðal Haukafólks. Endilega gefið ykkar álit með því að smella á linkinn. Skoðun ykkar skiptir máli.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Upp hefur komið sú hugmynd að stofna rafíþróttadeild innan Knattspyrnufélags Hauka. Okkur langar til að kanna áhugan á slíku meðal Haukafólks. Endilega gefið ykkar álit með því að smella á linkinn. Skoðun ykkar skiptir máli.
Handknattleikskonan Helena Ósk Kristjánsdóttir hefur gert samning við Handknattleiksdeild Hauka um að leika með meistaraflokki kvenna næstu 2 árin. Helena Ósk kemur til liðs við Hauka frá HK þar sem hún lék í 1 tímabil en áður lék hún með Fjölni þar sem hún er uppalin. Helena Ósk sem er fædd árið 1998 er kröftugur…
Lokahóf HSÍ fór fram fyrr í dag í Laugardalshöll þegar þeir leikmenn í efstu tveimur deildum karla og kvenna sem þóttu skara fram úr á tímbilinu voru heiðraðir. Haukar fegnu þrenn verðlaun en öll voru þau karlamegin. Gunnar Magnússon þjálfari meistarflokks karla var valinn þjálfari ársins og Daníel Þór Ingason var valinn besti varnarmaður tímabilsins…
Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Ólaf Ægi Ólafsson. Ólafur Ægir kemur til liðs við Hauka frá svissneska liðinu Lakers Stäfa þar sem hann lék í eitt tímabil. Liðið lenti í 2. sæti næst efstu deild á nýliðnu tímabili en Ólafur Ægir gerði 100 mörk í 25 leikjum með liðinu á tímabilinu. Ólafur Ægir sem…
Það er opið fyrir umsóknir á Afrekslínu Hauka 2019-20! Fyrri umsóknarfrestur er til 1. júlí. Allar upplýsingar er að finna inni á umsóknareyðublaðinu. Afrekslínan er annars vegar Afreksskólinn fyrir 2004-2006 módel og svo Afrekssviðið fyrir 2000-2003 módel. Ítarlegar upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði má finna með því að SMELLA HÉR
Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka fyrir nýliðið tímabil fór fram á miðvikudagskvöld að viðstöddum fjölda fólks. Þá voru þeir leikmenn sem þóttu skara framúr heiðraðar sem og þeir sem eru að kveðja Hauka eftir ötullt starf. Hjá U-liðnu var Andri Scheving valinn besti leikmaður tímabilsins og Hjörtur Ingi Halldórsson valinn sá mikilvægasti. Hjá meistarflokki kvenna var Alexandra Líf…
Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka fer fram miðvikudaginn 29. maí næstkomandi á Ásvöllum. Kvöldið hefst á fordrykk í betri stofu Hauka í horni uppá palli og að sjálfsögðum verður Bjössabar opinn. Svo færist skemmtunin niður í veislusal þar sem boðið verður uppá dýrindis grillveislu frá Kjöt Kompaní. Húsið opnar 19.30 og hefst borðhald 21.00. Miðaverð 3919kr…
Skyttan Maria Ines de Silva Perreira hefur samið við HSG BAd Wildungen Vipers sem leikur í efstu deild í Þýskalandi en liðið lenti í 11. sæti þýsku Bundesligunnar á nýloknu tímabili. Maria hefur verið einn af burðarrásum kvennaliðs Hauka síðustu 4 ár en með Haukum vann hún deildarmeistaratitilinn 2016. Hún hefur verið einn markahæsti leikmaður…