Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • SS Bikarinn

    Haukar og ÍBV buðu uppá frábæran handbolta í úrslitaleik SS bikarsins í Höllinni í dag. Leikurinn endaði með sigri ÍBV 35-32 og óskum við þeim til hamingju með Bikarmeistaratitilinn. Já, þetta var hörkuleikur og frábær handbolti. Margir voru á því fyrir leik að Haukastelpurnar yrðu í miklum vandræðum og að leikurinn væri nánast tapaður fyrirfram….

  • Haukastelpur í Höllinni

    Nú fer óðum að styttast í úrslitaleikinn í bikarnum hjá mfl. kvenna þar sem stelpurnar okkar spila til úrslita við lið ÍBV. Leikurinn verður í Höllinni laugardaginn 28. febrúar og hefst kl. 13:00. Miðaverð kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 400 fyrir börn. Á leikdag ætlum við að hittast á Ásvöllum til að hita okkur…

  • Haukar-Valur mfl. kvenna

    Stelpurnar okkar unnu góðan sigur19-17 á Val á Ásvöllum í dag. Þær skoruðu fyrsta markið, Valur jafnaði 1-1 en eftir það voru stelpurnar okkar með forystuna. Þær byrjuðu fyrri hálfleikinn vel, vörnin var mjög góð og sóknin fín og uppskeran var góð staða í hálfleik 14-6. Í seinni hálfleik gekk ekkert í sókninni en vörnin…

  • Fram-Haukar mfl. karla

    Strákarnir okkar heimsóttu Fram í Framheimilið í dag og unnu sigur 28-33. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en strákarnir okkar voru yfir 14-16 í hálfleik. Þeir héldu forystunni í seinni hálfleik en jafnt var 19-19. Þá sigu okkar menn framm úr og lönduðu góðum fimm marka sigri. Markahæstir voru Ásgeir Örn og…

  • Klóna stuðningsmenn sig ???

    Minnum á leiki helgarinnar hjá meistaraflokkunum. Á laugardaginn spila strákarnir við Fram kl. 16:30 og stelpurnar spila kl. 17:00 á Ásvöllum við Val. Já strákarnir kl. 16:30 í Framhúsi og stelpurnar kl. 17:00 á Ásvöllum. Stuðningsmenn Hauka eru duglegir að mæta á leiki, en það er sama hversu harðir og áhugasamir þeir eru, þá sér…

  • Haukar-Stjarnan mfl.karla

    Frábær 12 marka sigur hjá strákunum okkar er þeir unnu Stjörnuna 36-24 Ásvöllum í kvöld. Þeir byrjuðu leikinn af krafti og náðu góðri forystu strax í upphafi 7-2. Stjarnan náði að minnka í 9-7 en þá gáfu strákarnir okkar aftur í og staðan var 17-11 í hálfleik. Fljótlega í byrjun seinni hálfleiks minnkuðu gestirnir í…

  • Haukar-GróttaKR mfl.karla

    Strákarnir okkar unnu frábæran sigur 33-26 á GróttuKR á Ásvöllum í dag. Það var jafnt á öllum tölum framan af og skorti töluvert á einbeytingu hjá okkar mönnum. Það var ekki fyrr en rétt undir lok fyrri hálfleiks að þeir náðu 2ja og 3ja marka forystu, 10-9, 13-10 og í hálfleik var staðan 13-11. Strax…

  • Fram-Haukar mfl.kvenna

    Góður sigur19-26 hjá stelpunum okkar á Fram í Safamýrinni í dag. Þær byrjuðu leikinn mjög vel, vörnin var fantagóð og staðan 2-11 eftir miðjan fyrri hálfleik. Þegar um tíu mínútur voru eftir hrökk allt í baklás, vörnin hélt engu og ekkert gekk í sókninni og náði Fram að minnka muninn í 7-12. Byrjunin á seinni…

  • Valur-Haukar mfl.karla

    Það var boðið uppá frábæran leik þegar Haukar og Valur mættust á Hlíðarenda í kvöld. Staðan í hálfleik var 14-15 og endaði leikurinn með jafntefli 27-27 . Strákarnir okkar voru að spila vel, bæði í vörn og sókn en hlutirnir voru ekki að falla okkar megin og má kannski segja að jafntefli hafi verið ásættanlegt…

  • Haukar-GróttaKR

    Ekki gengu hlutirnir upp hjá stelpunum okkar í dag er þær töpuðu 35-37 fyrir GróttuKR á Ásvöllum. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og jafnt á flestum tölum. Í seinni hálfleik náðu gestirnir betri byrjun og voru yfir eitt til þrjú mörk. Stelpurnar okkar náðu að jafna 26-26 og jafnt var á öllum tölum í 31-31,…