Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Haukar-KA 4-liða úrslit

    Jæja, þá er sumarið loksins komið og fyrsti leikur í 4-liða úrslitum karla alveg að bresta á. Við vonum að strákarnir okkar komi vel undan vetri því mótherjar þeirra eru engir aðrir en KA menn, fulltrúar höfuðstaðs Norðurlands. Fyrsti leikur verður á Ásvöllum þriðjudaginn 27. apríl kl. 19:15. Annar leikur á Akureyri fimmtudaginn 29. apríl…

  • Konur – takið kvöldið frá

    Ágæta Haukakona Jæja, þá er loksins komið að hinu vinsæla kvennakvöldi Hauka. Það verður haldið að Ásvöllum föstudaginn 30. apríl n.k. Þetta verður með hefðbundnum hætti, góður matur, happadrætti og fleira. Veislustjóri verður Harpa Melsted, meistaraflokksleikmaður í blóma. Ræðukona verður Ágústa Jóhannsdóttir og svo endar kvöldið með hljómsveitinni Randver. Bræðragengið framreiðir góðan mat fyrir okkur…

  • Haukar-ÍBV 8-liða úrslit

    Strákarnir okkar sigruðu ÍBV í miklum markaleik á Ásvöllum í kvöld. Í hálfleik var staðan 21-19 og endaði leikurinn 41-39, já 80 mörk takk fyrir. Það fór lítið fyrir vörn hjá okkar mönnum og nokkuð ljóst að í þeirra páskaeggjum var ekki málshátturinn “Gott er að spila vörn í handbolta”. ÍBV skoraði fyrsta markið en…

  • Úrslitakeppni mfl.karla

    Úrslitakeppnin hjá strákunum hefst á morgun, þriðjudag. Strákarnir okkar eiga sinn fyrsta leik í 8-liða úrslitum við lið ÍBV og hefst leikurinn kl. 19:15 á Ásvöllum. Við vonum að allir hafi átt góða páskahelgi og séu tilbúnir í slaginn. Strákarnir okkar, nýkrýndir Deildarmeistarar, mæta örugglega tilbúnir til leiks og ætla sér ekkert annað en sigur….

  • Haukar Deildarmeistarar

    Strákarnir unnu KA-menn í miklum baráttuleik og uppskáru Deildarmeistaratitil því Valsmenn náðu einungis jafntefli við HK. Halldór var markahæstur með 11 mörk og Pauzuolis kom síðan með 7. Vörnin var ótrúlega góð á köflum og má segja að hún hafi skapað þennan sigur þrátt fyrir smá hikst öðru hvoru.

  • HAUKAR-FH 8-liða úrslit

    Stelpurnar okkar töpuðu í kvöld fyrir FH 19-28 og því miður er þetta ekki aprílgabb. Þær áttu ansi dapran dag, sérstaklega í sókninni þar sem ekkert gekk upp. Leikurinn var jafn í byrjun, Haukar gerðu fyrstu tvö mörkin og síðan var jafnt í 5-5 en þá hrökk allt í baklás og staðan orðin 6-11 og…

  • 8-liða úrslit kvenna

    Úrslitakeppnin hefst hjá stelpunum á morgun. Stelpurnar okkar enduðu í fjórða sæti og spila því við FH sem var í fimmta sæti. Fyrsti leikur er á morgun fimmtudag kl. 19:15 á Ásvöllum og annar leikur á sunnudag kl. 19:15 í Kaplakrika. Ef með þarf verður þriðji leikur væntanlega 6. apríl. Þetta verða án efa hörkuleikir…