Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Dóri aðstoðarþjálfari mfl. karla

    Í kvöld var gengið frá ráðningu Halldórs Ingólfssonar sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Dóri hefur spilað með okkur í vel á annan tug ára og hefur sem fyrirliði farið fyrir sínum mönnum í sigursælu liði Hauka. Hann tekur nú við starfi aðstoðarþjálfara og á honum án efa, eftir að farast það vel úr hendi. Heimasíðan óskar…

  • Palli þjálfar meistaraflokk karla

    Í kvöld var skrifað undir samning við Pál Ólafsson um þjálfun meistaraflokks karla. Palli er gallharður Haukamaður sem vart þarf að kynna, hann er fyrrverandi leikmaður Hauka og síðan var hann aðstoðarþjálfari í nokkur ár og tók svo við sem aðalþjálfari eftir áramótin og stýrði liðinu eftirminnilega til sigurs á Íslandsmótinu. Heimasíðan óskar Palla velfarnaðar…

  • Aðalfundur

    Framhaldsaðalfundur hjá deildinn var haldinn í gærkvöldi. Helstu breytingar voru þær að Eiður Arnarson, formaður til tveggja ára gaf ekki kost á sér í formannsstólinn en hann fór ekki langt og var kjörinn í stjórn. Við formennsku tók Þorgeir Haraldsson og þarf vart að kynna hann fyrir ykkur. Þorgeir var fyrst kjörinn í stjórn fyrir…

  • Lokahóf yngri flokka

    Uppskeruhátíð yngri flokka verður haldin að Ásvöllum fimmtudaginn 27. maí kl. 18:00. Dagskrá verður með hefðbundnum hætti; veittar verða viðurkenningar og síðan verða veitingar í boði deildarinnar, grillaðar pylsur og safi að hætti hússins. Allir velkomnir, ungir sem aldnir.

  • Nína komin heim

    Nína K. Björnsdóttir er komin uppá land og hefur gengið til liðs við Hauka að nýju. Við Haukar þekkjum vel til Nínu og bíðum spennt að sjá „bomburnar“ hennar í netmöskvunum. Við bjóðum Nínu innilega velkomna aftur og hlökkum til að sjá til hennar næsta vetur. .

  • Nýr leikmaður mfl.karla

    Nýr leikmaður hefur bæst í hóp meistaraflokks karla. Hinn efnilegi Gunnar Ingi Jóhannsson gekk til liðs við Hauka í dag. Hann er tvítugur að aldri og er sonur Haukavinarins góða Jóhanns Inga Gunnarssonar. Við bjóðum Gunnar Inga velkominn í Haukafjölskylduna og erum fullviss að hann kemur til að blómstra hjá okkur.

  • Lokahóf eldri flokka

    Jæja, þá er komið að lokahnykknum. Við ætlum að hittast á Ásvöllum föstudaginn 21. maí n.k. á lokahófi hkd. Hauka. Húsið opnar kl. 19:30. Miðaverð aðeins kr. 1.500. Mætum öll, gleðjumst saman og fögnum glæsilegum árangri.

  • Dollan heima

    Já, í gærkvöldi tryggðu strákarnir okkar að “Dollan” væri áfram heima á Ásvöllum. Þeir sýndu og sönnuðu að Haukar eru með langbesta liðið á Íslandi. Úrslitin voru engin tilviljun, að vinna 3-0 í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn er magnað og sýnir yfirburði Hauka. Þeir skrifuðu sig á spjöld sögunnar með því að vera fyrsta liðið til…

  • Myndir

    Myndasafnið okkar er loksins að farað lifna við aftur eftir alltof langt hlé. Við byrjum á myndum frá því í gær sem hægt er að sjá hér. Gömlu myndirnar koma nú vonandi inn með hækkandi sól.

  • Landsliðshópur karla

    Guðmundur Guðmundsson hefur valið landsliðhópinn sem tekur þátt í Flanders Cup í Belgíu aðra helgi. Í hópnum eru ‘eðlilega’ nokkrir Haukamenn. Birkir Ívar, Þórir, Vignir og Ásgeir Örn. Síðan held ég að við getum eignað okkur Kristján Andrésson en karl faðir hans spilaði ófáa leikina í Haukabúningnum. Markverðir: Birkir Ívar Guðmundsson Haukar Pálmar Pétursson Valur…