Palli þjálfar meistaraflokk karla
Í kvöld var skrifað undir samning við Pál Ólafsson um þjálfun meistaraflokks karla. Palli er gallharður Haukamaður sem vart þarf að kynna, hann er fyrrverandi leikmaður Hauka og síðan var hann aðstoðarþjálfari í nokkur ár og tók svo við sem aðalþjálfari eftir áramótin og stýrði liðinu eftirminnilega til sigurs á Íslandsmótinu.
Heimasíðan óskar Palla velfarnaðar á komandi vetri …… og Palli minn, nú er pressa!!! – það voru tvær dollur í fyrra !!!
.
