Dollan heima
Já, í gærkvöldi tryggðu strákarnir okkar að Dollan væri áfram heima á Ásvöllum. Þeir sýndu og sönnuðu að Haukar eru með langbesta liðið á Íslandi. Úrslitin voru engin tilviljun, að vinna 3-0 í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn er magnað og sýnir yfirburði Hauka. Þeir skrifuðu sig á spjöld sögunnar með því að vera fyrsta liðið til að vinna úrslitarimmuna 3-0.
Liðið okkar hefur spilað frábærlega í einvíginu, nánast óaðfinnanlega. Liðsheildin hefur verið gríðarlega sterk, það er hvergi veikan hlekk að finna og hver einasti maður skilar sínu. Að vinna úrslitarimmuna 3-0 og tryggja sér titilinn heima á Ásvöllum fyrir troðfullu húsi af Haukum, er nánast fullkomnun.
Leikurinn í gær var frábær skemmtun. Okkar menn voru tilbúnir í slaginn og Valsmenn mættu vel stemmdir og ætluðu greinilega að selja sig dýrt. Þeir skoruðu tvö fyrstu mörkin en Haukar jöfnuðu fljótt og náðu 2ja marka forystu 6-4 en gestirnir jöfnuðu 6-6 og síðan var jafnt á öllum tölum í 11-11. Strákarnir okkar skoruðu næstu 3 mörk, 14-11 en gestirnir minnkuðu muninn og í hálfleik var staðan 16-15. Fyrstu 10 mín. í seinni hálfleik voru á svipuðum nótum. Liðin skiptust á að hafa forystu þar til staðan var 21-21. Þá kom að því sem stuðningsmenn Hauka höfðu beðið eftir. Í fyrri hálfleik var vörnin ekki alveg að ganga, en þarna small hún og þá kom markvarslan. Strákarnir okkar settu í sinn fræga fluggír og skoruðu næstu fjögur mörk og fannst manni sem gestirnir gæfust upp á þessum punkti. Sigurinn var í höfn og staðan 33-27 um 2 mín. fyrir leikslok. Lokatölur 33-31 og sigurlaunin voru Íslandsmeistaratitillinn.
Valur átti í raun aldrei möguleika, þeir reyndu hvað þeir gátu en mættu einfaldlega ofjörlum sínum. Bæði lið spiluðu heiðarlega í gær og raunar í öllum þrem leikjunum. Það var spilað fast og vel tekist á en leikmenn sýndu gagnkvæma virðingu.
Við Haukar þökkum Val fyrir drengilega úrslitarimmu, það er sárt að tapa en silfur er aldeilis ekki slæmt.
Við viljum einnig þakka okkar frábæru áhorfendum fyrir þeirra dygga stuðning, þeir hafa farið á kostum í úrslitakeppninni. Þeir hafa mætt á leikina, hvatt leikmenn linnulaust og skapað magnaða stemmingu. Allir sem komu að framkvæmd leikjanna fá einnig kærar þakkir. Án ykkar hefði þetta ekki verið hægt.
Þeir sem fá mestu þakkirnar eru auðvitað strákarnir okkar. Þeir sýndu okkur á glæsilegan hátt að Haukar eiga besta handknattleikslið landsins. Þeir sýndu þvílík tilþrif að unun var á að horfa.
Til hamingju strákar, þið eruð mestir, bestir og flottastir. Þið eruð ÍSLANDSMEISTARAR 2004.
.
