Nýr leikmaður hefur bæst í hóp meistaraflokks karla. Hinn efnilegi Gunnar Ingi Jóhannsson gekk til liðs við Hauka í dag. Hann er tvítugur að aldri og er sonur Haukavinarins góða Jóhanns Inga Gunnarssonar.
Við bjóðum Gunnar Inga velkominn í Haukafjölskylduna og erum fullviss að hann kemur til að blómstra hjá okkur.