Landsliðshópur karla
Guðmundur Guðmundsson hefur valið landsliðhópinn sem tekur þátt í Flanders Cup í Belgíu aðra helgi. Í hópnum eru ‘eðlilega’ nokkrir Haukamenn.
Birkir Ívar, Þórir, Vignir og Ásgeir Örn. Síðan held ég að við getum eignað okkur Kristján Andrésson en karl faðir hans spilaði ófáa leikina í Haukabúningnum.
Markverðir:
Birkir Ívar Guðmundsson Haukar
Pálmar Pétursson Valur nýliði
Ólafur Gíslason ÍR nýliði
Björgvin Páll Gústafsson HK
Útileikmenn:
Sturla Ásgeirsson ÍR nýliði
Baldvin Þorsteinsson Valur nýliði
Bjarni Fritzson ÍR
Þórir Ólafsson Haukar
Róbert Gunnarsson Aarhus GF
Vignir Svavarsson Haukar
Arnór Atlason KA
Ingimundur Ingimundarson ÍR
Heimir Örn Árnason Valur nýliði
Kristján Andrésson GUIF nýliði
Ásgeir Örn Hallgrímsson Haukar
Einar Hólmgeirsson ÍR
Hrafn Ingvarsson UMFA nýliði
Vilhjálmur Halldórsson Valur nýliði
Valdimar Þórsson Fram nýliði
