Konur – takið kvöldið frá

Ágæta Haukakona

Jæja, þá er loksins komið að hinu vinsæla kvennakvöldi Hauka.
Það verður haldið að Ásvöllum föstudaginn 30. apríl n.k. Þetta verður með hefðbundnum hætti, góður matur, happadrætti og fleira.

Veislustjóri verður Harpa Melsted, meistaraflokksleikmaður í blóma. Ræðukona verður Ágústa Jóhannsdóttir og svo endar kvöldið með hljómsveitinni Randver.

Bræðragengið framreiðir góðan mat fyrir okkur með fullnægingu í eftirrétt.

Látið nú sem flestar sjá ykkur ásamt vinkonum og munið að húsið
opnar kl. 19:30.

Miðaverð er kr. 3.000,-

Látið skrá ykkur fyrir og á næstu leikjum, í síðasta lagi miðvikudaginn 28. apríl.

Dísa: 565-4090, 893-4090
Bjögga: 565-4522, 895-6369
Guðbjörg: 698-5440

Með Haukakveðju,
skemmtinefndin