Haukar-FH mfl.kv. á morgun
Minnum á leikinn hjá stelpunum okkar við FH annað kvöld kl. 20:00 á Ásvöllum.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Minnum á leikinn hjá stelpunum okkar við FH annað kvöld kl. 20:00 á Ásvöllum.
Ófært var frá eyjum og var leiknum því frestað.
Minnum á leikinn hjá stelpunum við ÍBV í kvöld kl. 19:15 á Ásvöllum.
Minnum á Herrakvöld Hauka föstudaginn 16. janúar í veislusalnum á Ásvöllum. Fyrir utan glæsilegan matseðil verða fjölbreytt skemmtiatriði, m.a. Jóhannes Kristjánsson eftirherma, leynigestur, IDOL keppnin á tjaldi ofl. ofl. Þetta er skemmtun sem enginn sannur herramaður má láta fram hjá sér fara. Húsið opnar kl. 19.30 (og lýkur skemmtuninni seinna en fyrr).
Árið byrjaði ekki nógu vel hjá stelpunum okkar og áttu þær arfaslakan seinni hálfleik er þær töpuðu illa fyrir Stjörnunni á Ásvöllum í gærkvöldi 22-30. Fyrri hálfleikur byrjaði vel og allt leit út fyrir spennandi og skemmtilegan leik. Stelpurnar okkar skoruðu fyrstu tvö mörkin, Stjarnan jafnaði 4-4. Liðin skiptust síðan á að hafa forystu og…
Ásgeir Örn Hallgrímssonar var í dag valinn Íþróttamaður Hauka 2003. Ásgeir Örn er einn af okkar ungu afreksmönnum, hann er íþrótt sinni til sóma og er verðug fyrirmynd og fulltrúi félagsins.
Á morgun, gamlársdag fer að venju fram kjör á íþróttamanni Hauka. Dagskráin hefst kl. 12:30 og hvetjum við alla Hauka til að mæta á Ásvelli, hitta félagana og þiggja veitingar í boði félagsins.
Við viljum minna allt Haukafólk á flugeldasölu Hauka og Björgunarsveitar Hafnarfjarðar sem er á Ásvöllum í vallarhúsinu við knattspyrnuvöllinn. Opið er alla daga frá 10:00 til 22:00, nema á gamlársdag, þá er opið til 16:00. Sýnum samstöðu og verslum flugeldana hjá félaginu okkar !
Í kvöld var Íþróttahátíð Hafnarfjarðar haldin í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Þar var hafnfirsku íþróttafólki veittar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu og ástundun og einnig voru heiðraðir þeir sem unnu meistaratitla á árinu 2003. Hápunktur kvöldsins var val á Íþróttamanni Hafnarfjarðar 2003 og kom það fáum á óvart að titilinn hlaut handboltakappinn okkar frábæri, Ásgeir Örn Hallgrímsson….
Sendum Haukum nær og fjær sem og öðrum landsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld og frið á komandi ári. Þökkum stuðning og samstarf á árinu sem er að líða.