Klóna stuðningsmenn sig ???

Minnum á leiki helgarinnar hjá meistaraflokkunum.

Á laugardaginn spila strákarnir við Fram kl. 16:30 og stelpurnar spila kl. 17:00 á Ásvöllum við Val.

Já strákarnir kl. 16:30 í Framhúsi og stelpurnar kl. 17:00 á Ásvöllum. Stuðningsmenn Hauka eru duglegir að mæta á leiki, en það er sama hversu harðir og áhugasamir þeir eru, þá sér heimasíðan ekki hvernig þeir geta mætt á báða leikina og sér ekki hvernig þetta á að auka áhuga og áhorf á boltann.

Áfram Haukar – við gerum samt hvað við getum til að vera á báðum stöðum !