Happdrætti meistaraflokks karla í handbolta

Á morgun, laugardag munu strákarnir í meistarflokki karla í handbolta draga í happdrætti sem þeir hafa staðið fyrir til styrktar þáttöku í evrópukeppninni. Hópurinn safnaði í sumar og haust fjölda glæsilegra vinninga og er því til mikils að vinna fyrir þá sem voru svo heppnir að næla sér í einn af þeim þúsund miðum sem […]

Sætur sigur á HK

Haukar unnu í gær sætan sigur á HK 24-23 í N1-deild karla í handbolta. Leikið var í Digranesi þeirra HK-inga og var ljóst fyrir leik að hann yrði erfiður því HK-liðið hefur aldrei verið létt heim að sækja. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og aldrei munaði meira en þremur mörkum á liðunum, heimamenn […]

Nóg að gera hjá handboltamönnum!

Það er ansi þéttur pakki í handboltanum næstu vikuna en þá spilar meistaraflokkur karla hvorki fleiri né færri en þrjá leiki í deild og bikar. Gamanið hefst í kvöld, þegar okkar drengir halda upp í Kópavog og mæta þar heimamönnum í HK í Digranesinu kl.19:30. HK er einmitt eina liðið sem hefur tekið stig af […]

Haukar taka á móti ÍR á morgun

Næstkomandi laugardag er leikur í Schenkerhöllinni við Ásvelli. Þá leika Haukar og ÍR í N1 deild karla í handbolta og hefst leikurinn kl.15:00. Haukar eru í mjög þægilegri stöðu í efsta sæti deildarinnar með 15 stig, fjórum meira en Akureyri sem kemur í öðru sætinu með 11 stig. Haukar eiga auk þess leikinn gegn ÍR […]

Naumur sigur á Fram

Haukar halda áfram sigurgöngu sinni í N1-deild karla í handbolta en í gær lögðu strákarnir Frammara af velli 21-20 í miklum baráttu leik í Safamýrinni. Óhætt er að segja að okkar drengir hafi ekki átt góðan dag en það er jú einkenni góðs liðs að vinna sigra þrátt fyrir að spila ekki vel. Nánar má […]

Haukar völtuðu yfir FH

Hafi Hafnfirðingum ekki verið það ljóst fyrir leik FH og Hauka, í N1-deild karla í handbolta síðast liðin laugardag, hvort liðið væri öflugra um þessar mundir þá fengu þeir skýr svör frá þeim rauðklæddu. Haukar hreinlega völtuðu FH-inga á þeirra eigin heimavelli en lokatölur voru 31-18. Munurinn var mestur 15 mörk í stöðunni 30-15 en […]

Slagurinn um Hafnarfjörð!

Á morgun fer fram sannkallaður stórleikur í N1-deild karla í handbolta þegar við Haukar höldum upp í Kaplakrika og mætum nágrönnum okkar í FH.  Það vantar ekki stóru orðin hjá stuðningsmönnum FH fyrir leikinn en Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri FH segir orðrétt á heimasíðu félagsins: ,,Leikurinn fer 28 – 20. Þetta verður slátrun hjá Fimleikafélaginu…„.  Við […]

Fjöldi drengja til landsliðsæfinga í handbolta

Mikil gróska er í handboltanum hjá Haukum og eru þar margir efnilegir íþróttamenn sem félagið er afar stollt af. HSÍ hefur vali nokkra af iðkendum Hauka í landslið sín og nú síðustu dagana hafa eftirfarandi verið valdir í landsliðshópa karla.   U – 16 ára  landslið karla. eru 3 leikmenn  frá Haukum sem mun leika […]

Tvö af fjórum mögulegum í handboltanum

Bæði karla og kvennalið Hauka áttu heimaleiki um helgina í N1-deildum sínum í handbolta. Stelpurnar mættu Stjörnunni og töpuðu 19-25 en strákarnir tóku á móti Akureyri í toppslag N1-deildar karla. Haukar höfðu þar öruggan átta marka sigur 30-22. Nánar er hægt að lesa um leikina á helstu fjölmiðlum landsins. Eftir sex umferðir eru strákarnir í […]

Handboltadagur Hauka á laugardag!

Á laugardaginn verður mikið um dýrðir hjá handboltafólki Hauka en þá verður Handboltadagur Hauka haldinn hátíðlegur. Sem kunnugt er eiga bæði karla og kvennalið félagsins heimaleik þennan dag. Stelpurnar hefja leik gegn Stjörnunni kl.13:30 og strákarnir eiga svo toppslag gegn Akureyri kl.15:45. Fjörið hefst hins vegar kl.12:30 þegar boðið verður upp á andlitsmálningu og sjoppann […]