Tvö af fjórum mögulegum í handboltanum

HaukarBæði karla og kvennalið Hauka áttu heimaleiki um helgina í N1-deildum sínum í handbolta. Stelpurnar mættu Stjörnunni og töpuðu 19-25 en strákarnir tóku á móti Akureyri í toppslag N1-deildar karla. Haukar höfðu þar öruggan átta marka sigur 30-22. Nánar er hægt að lesa um leikina á helstu fjölmiðlum landsins.

Eftir sex umferðir eru strákarnir í afar góðum málum á toppi N1-deildar karla með 11 stig. Fjórum stigum meir en Akureyri, FH og Fram sem koma í næst með 7 stig. Haukastelpur eru í 7. sæti N1-deildar kvenna með fjögur stig að loknum fimm umferðum.