Sannfærandi sigur á Val

Haukar sitja einir á toppi N1-deilar karla í handbolta að loknum fimm umferðum eftir sigur á Val í gær í Schenkerhöllinni á Ásvöllum 28-23. Haukar eru með 9 stig en næstir koma Akureyringar í öðru sæti með 7 stig. Enn betra er að Haukar eru ósigraðir í þessum fimm leikjum en eina liðið sem hefur […]

Haukastúlkur lágu gegn FH

Haukastúlkur léku gegn FH-ingum í N1-deild kvenna í gærdag í fyrsta Hafnarfjarðarslag vetrarins í handboltanum. Því miður gekk leikurinn ekki sem skyldi hjá okkar stúlkum og lyktaði honum með 25-21 sigri þeirra FH-inga. Leikurinn var þó mun jafnari en lokatölurnar gefa til kynna en það var ekki fyrr en í blálokinn sem FH stúlkur silgdu […]

Haukar mæta Val

Við minnum fólk á leik Hauka og Vals í N1-deild karla í handbolta sem fram fer kl.17:00 í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í dag! Allir á völlinn!

Flott frammistaða 5.flokks

Fyrsta mótið af fimm í Íslandsmóti 5. fl. karla eldra ár (Pepsímótið) var haldið í um helgina í Vestmannaeyjum.  Haukarnir sendu 3 lið til keppni og sést sá glæsilegi hópur ásamt Ella þjálfar á myndinni hér að neðan.  Öll Haukaliðin stóðu sig með prýði og A-lið Hauka sigraði 1. deildina eftir harða keppni.

Sigur hjá stelpunum, tap hjá strákunum

Bæði karla og kvennalið Hauka í handbolta voru í eldlínunni í gærdag. Strákarnir léku í Úkraínu gegn HC Motor í evrópukeppninni og fór svo að okkar menn biðu lægri hlut 20-25. Seinni leikur liðanna fer fram í dag og fer hann sem kunnugt er einnig fram ytra þar sem að Haukar seldu heimaleikjarétt sinn. Stelpurnar […]

Öruggur sigur á Aftureldingu

Haukar unnu sannfærandi sigur á Aftureldingu í N1-deild karla í handbolta í gærkvöld. Lokatölur urðu 27-22 í Íþróttahúsinu að Varmá, heimavelli Mosfellinga. Haukar voru alltaf á undan í þessum leik og töluvert sterkari aðilinn. Í hálfleik höfðu okkar menn fjögurra marka forskot í stöðunni 13-9. Smá værukærð greip um sig í upphafi síðari hálfleiks og […]

Haukar halda upp í Mosfellsbæ á morgun

Á morgun, miðvikudag keppa strákarnir okkar við lið UMFA að Varmá í N1-deild karla í handbolta. Leikurinn var færður fram um einn dag þar sem aðeins nokkrum klukkutímum eftir að leik lýkur halda Haukar til Úkraínu til að spila báða leikina við Motor Zaporoshye. Leikið verður þar klukkan 17.00 að staðartíma bæði laugardag og sunnudag. […]

Jafntefli gegn HK

Haukar og HK skyldu jöfn í gærkvöldi í N1-deild karla í handbolta hér í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Okkar menn voru yfir lengst um í leiknum en þó varð forskotið aldrei meir en fjögur mörk og var raunar yfirleitt minna í þessum mjög jafna og skemmtilega leik. Lokamínútan í leiknum var æsispennandi, Gísli Jón Þórisson kom […]

HC Mojkovac biðst afsökunar

Í gær barst Haukum formleg afsökunarbeiðni frá Vlatko Rakocevic, forseta HC Mojkovac vegna framferði eins leikmanna liðsins, Boris Savic í leik Hauka og Mojkovac um miðjan september sl. Savic skallaði Stefán Rafn Sigurmannsson í leiknum sem er auðvitað nokkuð sem á aldrei að sjást í íþróttaleik. Boris Savic biðst einnig sjálfur afsökunar á framferði í […]