Haukar halda upp í Mosfellsbæ á morgun

UMFA-Haukar, Varmá miðvikudag kl.19:30

Á morgun, miðvikudag keppa strákarnir okkar við lið UMFA að Varmá í N1-deild karla í handbolta. Leikurinn var færður fram um einn dag þar sem aðeins nokkrum klukkutímum eftir að leik lýkur halda Haukar til Úkraínu til að spila báða leikina við Motor Zaporoshye. Leikið verður þar klukkan 17.00 að staðartíma bæði laugardag og sunnudag.

Strákarnir gerðu jafntefli í síðasta leik við HK og eru í efsta sætinu með fimm stig eins og Akureyri og HK. Afturelding er hinsvegar í neðsta sæti deildarinnar án stiga.  Síðasti leikur þeirra var við Val á laugardag þar sem þeir léku án Davíð Svanssonar markmanns sem tók út leikbann en hann hefur verið þeirra besti maður. Leiknum töpuðu þeir 20-26. Áður höfðu þeir leikið við ÍR og tapað 25-28 og síðan töpuðu þeir fyrir HK 24-23 í hörkuleik.

Má því reikna með að Afturelding selji sig dýrt til að ná í sín fyrstu stig í deildinni. Er því nauðsynlegt að hvetja Haukafólk til að styðja strákanna okkar í þessum erfiða leik og mæta að Varmá til að tryggja tvö stig og gott veganesti til Ukraínu.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…