Fjögurra marka sigur á ÍR

Haukar unnu í gær góðan sigur á ÍR-ingum á útvelli í N1-deild karla í handbolta. Leikurinn fór fram í Austurbergi í Breiðholti og var mikil stemmning og vel mætt á völlinn hjá Breiðhyltingum enda langt síðan þeir léku síðast í efstu deild. Stemmningin var með ÍR-ingum í byrjun og voru þeir sterkari aðilinn framan af […]

Stórleikur á morgun! ÍR-Haukar

Á morgun er einn af stóru leikjum handboltans hjá mfl. karla er þeir fara upp í Austurberg og mæta nýliðum ÍR. Þótt ÍR hafi komið upp úr 1 deild fyrir þessa leiktíð er ljóst að þeir ætla sér að vera í toppbaráttu í vetur. Ingimundur Ingimundarson, Sturla Ásgeirs, Sigurjón Björns og fyrrum félagi okkar Bjöggi […]

Sigur á Fram í fyrsta leik

Strákarnir okkar hófu tímabilið í N1-deild karla í handbolta með öruggum sigri á Fram í Schenkerhöllinni Ásvöllum í kvöld. Lokatölur leiksins urðu 31-24 eftir að staðan í hálfleik var 20-11 okkar mönnum í hag. Strákarnir slökuðu kannski full mikið á í seinni hálfleik en að því undanskyldu var leikur liðsins góður og niðurstaðan eins og […]

Minnum á leikinn í kvöld

Við minnum aftur á leik Hauka og Fram í N1-deild karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fer fram kl.19:30 í Schenkerhöllinni Ásvöllum og er þetta fyrsti leikurinn í deildinni þetta haustið. Haukum hefur verið spáð efsta sæti deildarinnar af mörgum en Frömmurum er spáð frekar neðarlega. Það er hins vegar morgunljóst að ekkert vanmat dugir […]

Handboltavertíðin að hefjast!

Nú strax eftir helgi fara N1-deildirnar í handbolta karla og kvenna í gang. Bæði karla og kvennalið Hauka eiga heimaleiki í fyrstu umferð. Strákarnir mæta Fram á mánudag kl.19:30 en stelpurnar taka á móti Val kl.19:30 á þriðjudag. Allir á völlinn!

Meistari meistaranna í kvöld

Handboltatímabilið hefst með formlegum hætti í kvöld þegar fram fara leikir sem nefnast meistari meistaranna í karla og kvennaflokki. Um er að ræða leiki þar sem Íslandsmeistarar og bikarmeistarar síðasta tímabils mætast. Hjá stelpunum mætast Valur og ÍBV og karlamegin HK og okkar menn í Haukum. Leikur HK og Hauka er leikinn í Digranesi og […]

Stutt viðtal við Aron Kristjáns í tilefni af byrjun tímabils

Í tilefni af leikjum Hauka við lið HC Mojkovac frá Svartfjallalandi fékk heimasíðan Aron Kristjánsson þjálfara karlaliðs Hauka í handbolta og nýráðinn landsliðsþjálfara til þess að svara nokkrum spurningum tengdum komandi tímabili og leikjunum tveimur um helgina. ,,Mér líst ágætlega á veturinn. Það verður væntanlega hörð barátta um titlana í vetur og sæti í úrslitakeppninni […]

Haukar Hafnarfjarðarmeistarar í handbolta

Haukar urðu á föstudag Hafnarfjarðarmeistarar í handbolta karla eftir sigur á FH í úrslitaleik 17-11. Vefsíðan handbolti.org gerði mótinu góð skil og her gefur að líta umfjöllun síðunnar um leikinn og viðtal við Aron Kristjánsson, þjálfara Hauka. FH og Haukar og mættust í hreinum úrslitaleik á Hafnarfjarðarmótinu. Fyrri hálfleikur var í járnum og skiptust liðin […]

Valdimar færir Sigurjóni kyndilinn

Á dögunum voru formanna skipti í hkd. Hauka þegar Sigurjón Bjarnason tók við af Valdimari Óskarssyni sem hefur starfað sem formaður deildarinnar frá árinu 2010.  Sigurjón hefur lengi unnið sjálfboðaliðastörf fyrir hkd. Hauka bæði í barna og unglingaráði, stjórn deildarinnar og nú síðast sem varaformaður. Jafnframt mun Þorgeir Haraldsson gegna hlutverki varaformanns hkd. Hauka.   […]