Sigur á Fram í fyrsta leik

Strákarnir fara vel af stað í N1-deildinniStrákarnir okkar hófu tímabilið í N1-deild karla í handbolta með öruggum sigri á Fram í Schenkerhöllinni Ásvöllum í kvöld. Lokatölur leiksins urðu 31-24 eftir að staðan í hálfleik var 20-11 okkar mönnum í hag. Strákarnir slökuðu kannski full mikið á í seinni hálfleik en að því undanskyldu var leikur liðsins góður og niðurstaðan eins og áður sagði góður og öruggur sigur.

Þeir Árni Steinn Steinþórsson, Tjörvi Þorgeirsson og Sveinn Þorgeirsson voru allir með 5 mörk skoruð hjá Haukum en aðrir minna. Aron Rafn Eðvarðsson varði 15 skotí markinu.

Á vísi.is er hægt að finna ítarlega umfjöllun og viðtöl frá leiknum. Smellið hér til að nálgast fréttina