Minnum á leikinn í kvöld

HaukarVið minnum aftur á leik Hauka og Fram í N1-deild karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fer fram kl.19:30 í Schenkerhöllinni Ásvöllum og er þetta fyrsti leikurinn í deildinni þetta haustið. Haukum hefur verið spáð efsta sæti deildarinnar af mörgum en Frömmurum er spáð frekar neðarlega. Það er hins vegar morgunljóst að ekkert vanmat dugir gegn neinu liði í deildinni þetta árið en búist er við því að hún verði jafnari en nokkru sinni áður.

Allir á völlinn!