Sætur sigur á HK

Okkar menn lögðu HK í spennuleikHaukar unnu í gær sætan sigur á HK 24-23 í N1-deild karla í handbolta. Leikið var í Digranesi þeirra HK-inga og var ljóst fyrir leik að hann yrði erfiður því HK-liðið hefur aldrei verið létt heim að sækja.

Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og aldrei munaði meira en þremur mörkum á liðunum, heimamenn leiddu lengst af fyrri hálfleik en í síðari hálfleik voru Haukarnir í bílstjórasætinu án þess þó að hrissta spræka heimamenn af sér. Stefán Rafn Sigurmannsson var markahæstur í liði Hauka með 9 mörk og Aron Rafn Eðvarðsson varði 21 skot í markinu.

Visir.is var að vanda með ítarlega umfjöllun um leikinn og má lesa hana hér