32 liða úrslit Powaradebikars karla

32 liða úrslit Poweradebikars karla fer fram núna um helgina og eiga Haukar tvo fulltrúa í þessari umferð. Meistaraflokkur karla mætir liði FSu á Selfossi þann 2. des en degi fyrr eða þann 1. mæta Haukar B liði Víkings frá Ólafsvík.

Haukar B spiluðu í undankeppni bikarsins og unnu þar lið KV úr Vesturbænum. Þetta er í þriðja skiptið sem að Haukar B taka þátt í bikarnum og þrisvar hafa þeir komist í gegn um undankeppnina en dottið út í 32 liða úrslitum. Að þessu sinni ætla Haukar B sér áfram og verður spennandi að sjá hvort að Haukar munu eiga tvo fulltrúa í 16 liða úrslitum.

Leikirnir eru sem sagt sem hér segir

1. des 2012, kl: 13:00, Haukar B – Víkingur Ól. – Schenker-höllinni
2. des 2012, kl: 19:15, FSu – Haukar – Iðu, Selfossi

Fjölmennum og hvetjum bæði lið til sigurs.