Haukar taka á móti ÍR á morgun

Okkar menn mæta ÍR á laugardagNæstkomandi laugardag er leikur í Schenkerhöllinni við Ásvelli. Þá leika Haukar og ÍR í N1 deild karla í handbolta og hefst leikurinn kl.15:00.

Haukar eru í mjög þægilegri stöðu í efsta sæti deildarinnar með 15 stig, fjórum meira en Akureyri sem kemur í öðru sætinu með 11 stig. Haukar eiga auk þess leikinn gegn ÍR til góða.

ÍR-ingar geta hins vegar jafnað Akureyri að stigum með sigri í leiknum en þeir eru sem stendur í 3-4 sæti með 9 stig. Það er því svo sannarlega hörku leikur framundan á morgun, laugardag!

Haukar í horni ATHUGIÐ!!

Eftir leik verður boðið uppá Ítalst Bruschetta að hætta Valda matgæðins og hans teimi…. ásamt því að Bjössabar verður opinn.

Hvetjum alla til að mæta og styðja strákana í hörku leik.

Muna eftir HAUKA í horni kortinu til að sýna við inngang og í VIP.

Stjórn Hauka í horni.