Sigur upp á Skaga, Elvar rífur fram skóna

Haukar gerðu góða ferð upp á Skaga í kvöld og unnu heimamenn í ÍA 54-88 en sigur Hauka var aldrei í hættu. Haukar færðu sig nær Hetti sem situr í þriðja sæti með 10 stig en Haukar eru sem fyrr í því fjórða með 8 stig. Liðin skiptust á körfum í upphafi og breyttu Haukar stöðunni úr 9-8 í 9-20 og var þá strax ljóst í hvað stefndi.

Elvar Steinn Traustason skipti yfir í Hauka fyrir tímabilið og byrjaði að spirkla með B-liði Hauka. Hann hafði ekki hugsað sér að taka fram skóna að nýju en fyrir stuttu ákvað hann að taka slaginn og var í fyrsta skipti í vetur í hóp Haukanna. Elvar kom inn á í leiknum í kvöld og afrekaði að setja niður eina körfu og brjóta af sér. Þegar heimasíðan spurði hann hvernig honum fyndist að vera kominn aftur sagði hann bara: „Það er geggjað, rokk og ról.“

Aaryon Willams var stigahæstur Hauka með 23 stig og 7 fráköst og Haukur Óskarsson var einnig með 23 stig.

Allir leikmenn Hauka komu við sögu í þessum leik og stóðu sig með prýði að sögn þjálfara.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…