Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • SS-Bikarinn

    Nú fer óðum að styttast í úrslitaleikinn í bikarnum hjá mfl. karla þar sem strákarnir okkar etja kappi við félaga okkar í Fram og eins leikinn hjá 3. fl. karla Haukar-UMFA á sunudag. Því er ekki úr vegi að rifja upp gamlar ræður sem enn eru í fullu gildi Í Höllinni sjá leikmennirnir okkar um…

  • 3.fl.karla SS-bikarinn

    Eins og allir vita eru strákarnir í 3.fl. karla komnir í úrslit í SS-bikarnum. Þeir spila við Aftureldingu og verður leikurinn sunnudaginn 17. febr. kl. 13.30 í Laugardalshöll. Þennan dag verður einnig leikið til úrslita í 4.fl.kvenna kl. 12.00 Stjarnan-ÍR, ungl.fl. kvenna kl. 15.30 Grótta-KA og 2.fl. karla kl. 17.30 ÍR-Valur. Sama umgjörð verður á…

  • Haukastrákar í Höllinni

    Haukar bjóða alla Hafnfirðinga velkomna í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum næsta laugardag. Þar ætlum við öll að eiga ánægjulega stund og undirbúa okkur fyrir úrslitaleikinn í SS-bikarkeppninni, en leikurinn hefst klukkan 16:30. Húsið opnar klukkan 12:00 og verður ýmislegt til skemmtunar. Má nefna að boðið verður upp á andlitsmálun og veifugerð. Einnig hefur Æskulýðs- og…

  • Föndurkvöld

    Miðvikudaginn 13. febrúar ætlum við að föndra fyrir bikarleikinn á laugardag. Við hittumst upp á Ásvöllum kl. 17.30 og verðum til ca 20.00. Munið að taka með ykkur skæri. Tilvalið að taka með sér budduna og kaupa miða í forsölu. Mætum öll og skellum okkur í bikarskap.

  • SS-bikar 3.fl. karla

    Strákarnir okkar í 3.fl.karla unnu stórsigur á Val í kvöld í 4-liða úrslitum bikarkeppninnar. Haukarnir höfðu algjöra yfirburði í leiknum og unnu með 11 eða 12 mörkum. Þeir eru þar með komnir í úrslitaleikinn sem verður bikarhelgina 16. og 17. febr. í Laugardalshöll. Til hamingju strákar, frábært hjá ykkur.

  • Haukar-KA mfl.ka.

    Haukar og KA skildu jöfn á Ásvöllum í dag. Leikurinn var jafn allan tímann og staðan í hálfleik var 15-15 og síðari hálfleikur fór 15-15, sem sagt leikurinn endaði 30-30. Okkar menn byrjuðu bæði fyrri og seinni hálfleik vel en KA menn komust alltaf inn í leikinn og eins og fyrr segir endaði hann 30-30….

  • Haukar-ÍBV mfl.kv.

    Haukar unnu Vestmanneyinga verðskuldað á Ásvöllum í dag. Stelpurnar okkar voru seinar í gang og staðan í leikhléi var 10-12 Vestmanneyingum í hag. Í síðari hálfleik snerist dæmið gjörsamlega við eftir að Haukar jöfnuðu 13-13 og í framhaldi sáu Vestmanneyingar ekki til Eyja. Haukastelpurnar komust mest 6 mörkum yfir og lokatölur leiksins urðu 24-20 Haukum…

  • Leikir helgarinnar

    Stelpurnar taka á móti ÍBV á laugardaginn kl. 16.30 á Ásvöllum. Eftir langt hlé hefst Esso-deildin að nýju hjá strákunum og mæta þeir til leiks á Ásvöllum á sunnudag kl. 17.00 og taka á móti KA-mönnum. Þessi lið hafa marga hildi háð um Bikar- og Íslandsmeistaratitla, svo búast má við hörkuleikjum. Það er nokkuð ljóst…

  • EM lokið

    Ísland tapaði fyrir Danmörku 29-22 í leik um bronsið og endaði þar með í fjórða sæti í Evrópumótinu. Danir voru yfir nær allan leikinn, en við vorum þó inní leiknum þar til í seinni hluta síðara hálfleiks er Danir náðu öruggu forskoti. Leikurinn þróaðist svipað og leikurinn í gær, fyrri hálfleikur í lagi en í…