Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Tjörvi siglir utan

    Þorvarður Tjörvi mun halda til Danmerkur til náms næstkomandi haust. Að sjálfsögðu hefur hann ekki sagt skilið við handboltann og hefur gert tveggja ára samning við danska úrvaldsdeildarliðið Arhus GF. Við óskum honum til hamingju með þennan samning og óskum honum alls hins besta í Danaveldi, bæði í leik og námi. Við hlökkum til að…

  • Deildarmeistarar 2002

    Stelpurnar unnu glæsilegan sigur á FH á Ásvöllum í dag 32-26. Það var jafnt einu sinni 1-1 en síðan tóku stelpurnar öll völd á vellinum, staðan í hálfleik var 17-11 og í seinni hálfleik var munurinn mestur 10 mörk, 28-18. Stelpurnar eiga einn leik eftir í deildinni, en tryggðu sér með þessum sigri DEILDARMEISTARATITILINN 2002….

  • Haukar – FH kvenna

    ATH BREYTTUR TÍMI!! Leikurinn sem átti að vera kl.15:00 á morgun, laugardag, hefur verið frestað til 16.30. Við hvetjum alla til að mæta og styðja stelpurnar okkar þar sem þær etja kappi við frænkur sínar í FH. Þetta er næst síðasti leikurinn og ef stelpurnar vinna þá eru þær orðnar deildarmeistarar.

  • Haukar-UMFA mfl.ka.

    Strákarnir kláruðu leikinn með stæl, unnu 30-24. Þeir voru mjög vel “gíraðir” í leiknum og stóðu sig vel bæði í vörn og sókn. Afturelding klóraði í bakkann í seinni hálfleik og náði að minnka muninn í tvö mörk 21-19. Þá sögðu strákarnir okkar, hingað og ekki lengra og kláruðu leikinn, þrátt fyrir að vera full…

  • Haukar-UMFA mfl.ka.

    Strákarnir kláruðu leikinn með stæl, unnu 30-24. Þeir voru mjög vel “gíraðir” í leiknum og stóðu sig vel bæði í vörn og sókn. Afturelding klóraði í bakkann í seinni hálfleik og náði að minnka muninn í tvö mörk 21-19. Þá sögðu strákarnir okkar, hingað og ekki lengra og kláruðu leikinn, þrátt fyrir að vera full…

  • Haukar – UMFA

    Staðan í hálfleik er 16-11 fyrir strákunum okkar og hafa þeir verið mun betri aðilinn í leiknum. Það er sama hver kemur inná allir eru að spila sinn leik. Það er greinilegt að menn eru undirbúnir fyrir úrslitakeppnina. Bjarni er búinn að fara hamförum í markinu og velflest skot hans eru að vanda í dauðafærum.

  • Landsliðshópurinn

    Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari hefur valið A-landsliðið í handknattleik sem fer á fjögurra landa mótið í Danmörku um helgina. Markverðir: Bjarni Frostason Haukar Hreiðar Guðmundsson ÍR Hlynur Morthens Grótta/KR Hornamenn og línumenn Guðjón Valur Sigurðsson TUSEM Essen Gústaf Bjarnason GWD Minden Einar Örn Jónsson Haukar Sigfús Sigurðsson Valur Róbert Sighvatsson HSG Duesseldorf Gylfi Gylfason HSG Duesseldorf…

  • Selfoss-Haukar mfl.ka.

    Strákarnir unnu Selfoss 28-32 á Selfossi í gærkvöldi. Um hörkuleik var að ræða, Selfyssingar komust marki yfir seinni hluta leiks, en þá sýndu okkar menn hvað þeir geta og skoruðu nokkur mörk í röð og unnu leikinn með 4 mörkum. Þeir tróna því enn langefstir á toppi Esso-deildarinnar.

  • Valur-Haukar mfl.kv.

    Stelpurnar unnu góðan sigur á Val á Hlíðarenda í gær 29-24. Staðan í hálfleik var 10-17 fyrir okkur. Munurinn varð mestur 10 eða 12 mörk í seinni hálfleik en okkar stelpur gáfu aðeins eftir síðustu mínútur leiksins. Frábær sigur og styrkir liðið enn frekar á toppi Essó-deildarinnar. Thelma og Harpa voru markahæstar með 8 mörk…

  • Haukar-ÍR mfl.ka.

    Strákarnir okkar náðu að merja sigur á ÍR 23-22. Haukarnir voru þrisvar yfir í leiknum 1-0, síðan 22-21 og í leikslok 23-22. Seinni hluta síðari hálfleiks náðu strákarnir að rífa upp baráttu í vörninni með góðri hjálp dyggra stuðningsmanna og jafna og komast yfir og vinna stigin tvö. ÍR ingar börðust vel allan tímann en…