Haukar-Fram mfl.ka.
Strákarnir unnu Fram á Ásvöllum í dag 32-31. Þeir voru með yfirhöndina allan leikinn og staðan í hálfleik 15-10. Smá spenna varð í lokin en Haukarnir héldu haus og unnu góðan sigur.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Strákarnir unnu Fram á Ásvöllum í dag 32-31. Þeir voru með yfirhöndina allan leikinn og staðan í hálfleik 15-10. Smá spenna varð í lokin en Haukarnir héldu haus og unnu góðan sigur.
Stelpurnar unnu sigur á Fram í Framheimilinu í dag. Leikurinn endaði 30-23, staðan í hálfleik var 14-14. Framstelpur voru sprækar framan af og leikurinn jafn en í seinni hálfleik fóru Haukastelpur að taka á í vörninni og sigruðu örugglega eins og fyrr segir 30-23. Stelpurnar hafa þannig unnið 8-liða úrslitin 2-0 og mæta annað hvort…
Stelpurnar unnu stórsigur á Framdömum á Ásvöllum í kvöld í fyrsta leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Staðan í hálfleik var 18-8 og endaði leikurinn 31-20. Haukastelpurnar höfðu yfirhöndina allan leikinn, Fram komst reyndar í 0-1 en eftir það tóku Haukarnir völdin og sigurinn var aldrei í hættu. Markahæstar voru Harpa með 8 mörk og Hanna…
Þrátt fyrir að Deildarmeistaratitilinn væri í höfn, slökuðu strákarnir okkar hvergi á og héldu sigurgöngunni áfram og unnu GróttuKR á Nesinu í kvöld. Leikurinn endaði 25-33 fyrir okkar mönnum, staðan í hálfleik var 12-15 fyrir okkur. Haukarnir höfðu yfirhöndina allan leikinn og virtist sigurinn aldrei í hættu. Þeir voru að spila fínan bolta, bæði sóknin…
Þeir sem ekki komast á leikinn GróttaKR-Haukar á Nesinu í kvöld, geta hlustað á beina lýsingu á Útvarpi Sögu fm 94,3.
Nú fer páskasælunni senn að ljúka og boltinn að rúll aftur. Strákarnir eiga leik strax á morgun, þriðjudag , við GróttuKR á Nesinu kl. 20.00. Við hvetjum alla til að mæta og hrista af sér páskaeggjaátið og sýna líf á pöllunum. Spennan er svo að fara af stað hjá stelpunum, en úrslitakeppnin byrjar hjá þeim…
Strákarnir okkar unnu glæsilegan sigur á FH á Ásvöllum í kvöld 25-23. Leikurinn var nokkuð jafn, staðan í hálfleik 12-12. Í seinni háfleik komst FH yfir 16-19, en okkar menn tóku þá á sig rögg og rifu upp vörnina og sneru leiknum sér í hag og komust í 23-19 og héldu yfirhöndinn út leikinn með…
Strákarnir gerðu ekki góða ferð norður á Akureyri í gær. Þeir töpuðu naumlega fyrir Þór í miklum markaleik 32-31.
Stelpurnar léku sinn síðasta leik í deildinni við GróttuKR á Nesinu í gær. Þær héldu sigurgöngunni áfram og unnu örugglega 20-28. Staðan í hálfleik var 8-15. Það var sama hver kom inná, þær höfðu yfirhöndina allan leikinn og úrslitin aldrei í hættu. Nú er komið að úrslitakeppninni og sjálfsögðu ætla stelpurnar að halda sínu striki…
Fyrirliðinn okkar ástkæri er kominn í prófíl á Sportinu. Þar kemur ýmislegt í ljós…www.sportid.is